Kirkjuritið - 01.06.1958, Síða 48
286
KIRKJURITIÐ
Frú Inggibjörg Magiuisdóttir fró Laufási hefir gefið Svalbarðs-
kirkju og Laufáskirkju sitt eintakið hvorri af Guðbrandsbiblíu. Lýsir það
vel tryggð hennar til prestakalls manns hennar.
Miunismcrki um sóra Þorvnld Ilöövarsson. í tilefni af
tveggja alda afmæli séra Þorvalds Böðvarssonar sálmaskálds reistu nokkr-
ir niðjar hans, sem eins og kunnugt er eru fjölmargir, honum minnismerki
í Holti undir Eyjafjöllum. Var það afhjúpað við sérstaka minningar-
athöfn 21.maí s. 1. Hefir gjörr verið sagt frá þessu i blöðunum.
AA'alfuudur Itililíuiélngsius.
Aðalfundur Hins islenzka Bibliufélags var haldinn í Háskólakapell-
unni fimmtudaginn 29. maí síðastl. Forseti félagsins, herra Ásmundur
Guðmundsson biskup, setti fundinn með lestri Guðs orðs og bæn. Að þvi
loknu flutti hann skýrslu um störf félagsstjórnarinnar, sem að þessu
sinni náði um stuttan tíma, þar eð siðasti aðalfundur félagsins var hald-
inn í nóvember síðastl. 1 skýrslunni kom þó glöggt i ljós áframhaldandi
aukning félagatölu, svo og, að sala á Biblíum og Nýja testamentum
hefir verið mikil undanfarna mánuði. Þetta, ásamt auknum gjöfum til
félagsins, hefir haft mjög góð óhrif á fjárhag félagsins, sem sjá má af
þvi, að skuld þess við Leiftur, fyrir útgáfu Nýja testamentisins i stóra
brotinu, er að fullu greidd, og skuld við Prestakallasjóð, vegna prentunar
Biblíunnar, lækkuð úr kr. 170.000,00 niður i kr. 70.000,00. Myndir þær,
sem Halldór Pétursson listmólari gerði ó hlífðarkópu Biblíuútgáfu þess-
arar, voru gullbókaðar ó spjöld og kjöl nokkurs hluta upplagsins, svo að
eintök væru til, sem væru sem allra fegurst fermingargjöf.
Nýr heiðursfélagi hafði verið kosinn frá því á síðasta aðalfundi. Var
það séra Friðrik Friðriksson, sem kosinn var heiðursfélagi í tilefni ní-
ræðisafmælis hans á Hvítasunnudag.
Biskup þakkaði i lok skýrslu sinnar meðnefndannönnum sinum sam-
starf og þó einkum féhiiði, séra Óskari J. Þorlákssyni, og framkvæmda-
stjóra Ólafi B. Erlingssyni, sem mikið starf hefir hvilt á.
Féhirðir, séra Óskar J. Þorláksson, las reikninga félagsins. Eru þeir
orðnir allumfangsmiklir, síðan félagið tók að sér sölu á Biblíunni og
ekki sizt siðan tekið var að gefa N.T. og Biblíuna út hér á landi. Gaf
féhirðir einnig nokkrar upplýsingar um reikninga félagsins það sem af
er þessu ári. Reikningarnir voru samþykktir samhljóða.
Mikil og góð þátttaka var í umræðum um önnur mál félagsins, og
var þar margs getið, svo sem 150 ára afmælis félagsins, nauðsynjar á
endurskoðun á þýðingu Nýja testamentisins, útgáfu á leiðbeiningum við