Kirkjuritið - 01.02.1959, Side 4
50
KIRKJURITIÐ
P. Sívertsens, eins og þau eru bókfærð í fundargerð. Þar
segir: „Sigurður P. Sívertsen gat um, að félagið væri ekki
aðeins nauðsynlegt prestunum, heldur gjörvallri kirkjunni,
sem með því mundi í mörgu eflast og styrkjast. Blaðið
þyrfti að ná til sem flestra, þess vegna væri tímarit heppi-
legast, en mikilsvert væri að flýta hvoru tveggja, bæði
stofnun félagsins og útgáfu blaðsins.“ Hér er mörkuð
meginstefna félagsins, sú, að við það mætti kirkja lands
vors eflast og styrkjast. Og þeirri stefnu fylgdi Sigurður
Sívertsen trúlega í öllu starfi sínu fyrir félagið í nær tvo
áratugi, bæði sem formaður og ritstjóri. Þeirri stefnu hef-
ir síðan verið fylgt og ávallt með tvennu móti aðallega —
með áhrifum félagsins á kirkjulega löggjöf og með útgáfu
tímarits. Þessi megin sjónarmið voru mörkuð þegar í upp-
hafi á syndous 1918. Allir viðstaddir fundarmenn gerðust
félagar, en þeir voru 27.
Var þá kosin bráðabirgðastjórn. Hana skipuðu þessir
menn: Jón Helgason biskup, formaður, Magnús dósent
Jónsson, ritari, Sigurður P. Sívertsen, prófessor, gjaldkeri,
Eggert prófastur Pálsson, Breiðabólsstað, og Skúli Skúla-
son, áður prófastur í Odda, en var þá fluttur til Reykja-
víkur.
Fyrsta verkefni bráðabirgðastjórnarinnar var að rita
bréf öllum væntanlegum félagsmönnum, öllum þjónandi og
fyrrverandi prestum, svo og guðfræðikandídötum, og
hvetja til þátttöku í félaginu. Þann árangur bar bréfið,
að í desember voru félagsmenn orðnir 104, og enn var
bréf sent nokkrum próföstum, með tilmælum um að þeir
hvettu presta til þátttöku.
Annað það, sem sinna þurfti, var samvinna við aðra
starfsmenn ríkisins um afskipti af launamálum á Alþingi,
en þau mál kröfðust skjótrar og gagngerðrar úrlausnar,
eftir fjármálaumrót stríðsáranna. Eftir áskorun frá nefnd
ríkisstarfsmanna var kosin 5 manna nefnd af hálfu Presta-
félagsins til að fylgjast með undirbúningi væntanlegra
launalaga.