Kirkjuritið - 01.02.1959, Blaðsíða 28
Séra Jón Brandsson
fyrrv. prófastur frá Kollafjarðarnesi.
Hann lézt hér í bæ 8. janúar
síðastliðinn, eftir langvinna van-
heilsu, hátt á 84. aldursári.
Séra Jón var fæddur 24. marz
1875 að Prestsbakka í Hrútafirði.
Foreldrar hans voru séra Brandur
Tómasson og seinni kona hans
Valgerður Jónsdóttir hreppstjóra
á Skriðnisenni, Jónssonar. Stóðu
að þeim hjónum sterkir ættstofnar
þar í héraði og að nokkru einnig
víðar að. Móðurfaðir séra Brands
var séra Björn Hjálmarsson í
Tröllatungu. Þjónuðu þeir feðgar,
séra Björn og faðir hans, séra
Hjálmar Þorsteinsson, Trölla-
tunguprestakalli í rúm 70 ár samtals, og eru miklar ættir
frá þeim komnar í Strandasýslu og víðar.
Er séra Jón var fimm ára að aldri, fluttust foreldrar hans
að Ásum í Skaftártungu, og var séra Brandur sóknarprestur
þar til æviloka, 19. júlí 1891. Var hann talinn mikilhæfur
kennimaður og valmenni, og konur hans báðar, er voru al-
systur, honum líkar að mannkostum.
Æskuminningar séra Jóns- voru við Skaftafellsþing tengdar.
Veitti það honum mikið yndi, er hann á efri árum fékk tæki-
færi til að bregða sér þangað og endurnýja forn kynni við hin-
ar svipmiklu byggðir. En morgun lífsins hafði hann litið norð-
ur í héraði feðra sinna, og þangað átti leiðin að liggja aftur
til ævistarfs um hálfa öld.
Eftir lát séra Brands fluttist frú Valgerður með börn sín
norður í ættarhérað sitt. Þar hóf séra Jón undirbúning undir
skólanám hjá séra Arnóri Árnasyni á Felli í Kollafirði. Stúd-
entsprófi lauk hann vorið 1899 og embættisprófi við presta-
skólann 1902. Meðan hann var í prestaskólanum, sótti hann
kristilegt stúdentamót, er haldið var í Leckö í Svíþjóð 11.—18.
ágúst 1901.