Kirkjuritið - 01.03.1959, Qupperneq 12

Kirkjuritið - 01.03.1959, Qupperneq 12
106 KIRKJURITIÐ upp við slíkt, þótt það farist fyrir augum manna, og æ fleira ár frá ári? Nei, vér skulum vona, að hið háa Alþingi taki nú rögg á sig og veiti fé til björgunarstöðvarinnar. Á því stendur fyrst og fremst. Ný sýki. Oft er nú talað um tvenns konar leiða, sem tæpast átti sér nafn fyrir fáum áratugum. Námsleiða og lífsleiða æskufólks- ins. Ég ætla aðeins að drepa á þann síðarnefnda að þessu sinni. Ég veit ekki, hversu hann er útbreiddur né magnaður, en víst er hann nokkur, annars bæri hann sjaldnar á góma. Nú liggur í augum uppi, að lífsleiði æskufólks er óheilbrigður og ætti að vera fjarstætt fyrirbrigði. Fjör er flestum sárast, segir orðtak- ið. Málið er enn umhugsunarverðara fyrir það, að það er al- menn skoðun þeirra, sem nokkuð eru komnir til ára sinna, að aldrei hafi verið léttara né skemmtilegra að lifa á íslandi en nú. Vér höfum ótal Gróttakvarnir, smærri og stærri, sem mala oss gull og erfiða fyrir oss bæði á heimilunum og á almennum vinnustöðum. Og í höfuðstaðnum eru sælgætisbúðirnar ótelj- andi, og skemmtistöðunum sífjölgar árlega. Aðrir bæir taka sér það til fyrirmyndar, og félagsheimilin rísa hvert af öðru í sveitunum. Æskan sækir svo sem þessa skemtistaði, það vant- ar ekki. En er henni ekki skemmtun að skemmtununum? Er hér um nokkurs konar heyleiða að ræða? Það er eitthvað ann- að hljóð í strokknum en þegar unglingarnir áttu varla grænan eyri og urðu oft að láta sér nægja baðstofugólfið til skemmt- ana, dans og leika, eða ísana á vetrum og grasbalana á sumr- um, en sungu samt af hjartans einlægni: Hve glöð er vor æska, hve létt er vor lund ... Þetta er síður en svo horfið úr sögunni, en það hljómar sjaldn- ar og lægra en áður, — sízt á íslenzku. Vera má, að það sé orð- in almennari reynsla nú, sem Þorsteinn Erlingsson kvað um forðum: ■—• en hin fegurstu blóm urðu allslaus og tóm, ef þau urðu mér dálítið kunn;

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.