Kirkjuritið - 01.03.1959, Síða 24

Kirkjuritið - 01.03.1959, Síða 24
118 KIRKJURITIÐ áður en hún yrði, og orti tvær sextánmæltar vísur f jórum dög- um fyrir sitt andlát, er hann varð að skilja sæng við konu sína, — um það, að þau hefðu hana eigi skilið í 57 ár, sem þau höfðu saman verið. Hann gerði þá og fagurt huggunarkvæði til Ragn- hildar prestsekkju á Hallormsstað, eftir lát manns hennar, séra Hjörleifs Erlendssonar. Síðasta dag ævi sinnar lagði hann bless- an yfir sinnisveika kerlingu, sem hjá honum var, og hverri hann hafði viðhaldið með bæn og blessun og kristilegri skemmtun, og bað að láta altíð einhvern hjá henni vera til skemmtunar í sinn stað. Gekk svo út í kirkju sína, sem hann átti vanda til, og gerði þar bæn sína; og er hann kom inn aftur, bauð hann fólki sínu góðar nætur og kvaddi það allt. Gekk svo upp í loft það, sem hann var vanur að sofa í, féll á kné fyrir rúmi sínu eftir vanda, og las bænir sínar; lagðist svo upp í það og andað- ist með heitum bænartárum þann 15-júlí 1626, á 87. aldursári, þá hann hafði prestur verið 69 ár. 4. Þóröur Ólafsson (1602—1660). Faðir hans er talinn Ól- afur á Ketilsstöðum á Tjörnesi Þórðarson tréfóts, Péturssonar. Þórður tréfótur var sonur Péturs ábóta Pálssonar á Munka- þverá. Á hann að hafa lent í herþjónustu ytra og misst fót sinn í stríði á Þýzkalandi; gekk síðan við tréfót, en gat þó stokkið yfir 2 hesta á bak hinum þriðja. Um móður Þórðar prests er ekki vitað. Hann hefir orðið prestur í Nesi 1602 og haldið til ævi- loka (eða 58 ár). Hefir hann því verið orðinn kunnugur hér í Nesi. Hann fékk oft prestatillag vegna tekjurýrðar prestakalls- ins. Séra Þórður virðist hafa rétt mjög vel við staðarhús, en þau voru í niðurníðslu, er hann tók við, t. d. á þá að hafa ver- ið hér ekkert fjós. Hann þjónaði Einarsstöðum um eitthvert skeið, og tilfærir Daði fróði þá sögn manna, að hann hafi ver- ið við sjóróðra á Héðinshöfðamöl og riðið þaðan á laugardags- kvöldin móts við Nes, hvaðan honum hafi verið færð prests- hempan, og hafi hann að Einarsstöðum komið undan öllu kirkju- fólki og lagzt ávallt í sama stað uppi á kirkjunni, hvar síðan hafi sprottið lítill viðarrunni — og sézt þar merki hans allt þar til kirkjan var ofan rifin. Séra Þórður undirskrifar í Múla 11. febr. 1656, fjórum árum fyrir andlát sitt, kosningarbréf Gísla biskups Þorlákssonar. Um konu (eða konur) séra Þórðar er ekki vel kunnugt. En börn hans eru talin: 1. Ólafur faðir Þorsteins á Fjöllum í Keldu-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.