Kirkjuritið - 01.03.1959, Qupperneq 30
124
KIRKJURITIÐ
1754). Foreldrar: Séra Þorgrímur Jónsson að Hálsi í Fnjóska-
dal og kona hans Þórunn Jónsdóttir prests í Saurbæ, Hjalta-
sonar. Bróðir séra Jóns Þorgrímssonar að Hálsi. Hann lærði
fyrst hjá föður sínum, en síðan 5 ár hjá Þorleifi prófasti í
Múla, Skaftasyni. Varð stúdent úr heimaskóla 1737 frá Steini
biskup Jónssyni. Hann bjó frá því um 1740 á Ljótsstöðum í
Fnjóskadal, en síðar í Veisuseli. Missti réttindi sín til prests-
skapar vegna of bráðrar barneignar með konu sinni 1740. Fékk
uppreisn 22. nóv. 1748 og veitingu fyrir Nesi 1750, vígðist 15.
nóv. s. á. Þjónaði þann vetur Draflastöðum fyrir séra Jón bróð-
ur sinn að Hálsi, en fluttist að Nesi vorið 1751. Hann fær gott
orð í prófastsvottorði 24. okt. 1750.
Kona séra Hjalta, er hann kvæntist 1740, var Ingibjörg Þor-
steinsdóttir frá Hallgilsstöðum í Fnjóskadal, gegn vilja móður
sinnar — vegna fátæktar Ingibjargar, því að hann hafði erft
nokkuð í fasteignum — átti Hrappsstaði í Kinn, Vað og Veisu-
sel —, og komu þær jarðir til skipta eftir hann. Börn þeirra
hjóna voru: 1. Ólafur, er fór utan og varð klæðskeri, 2. Þor-
grímur, ókunnugt um hann, 3. Þorsteinn á Krossi, langafi Guð-
jóns gamla á Ljóltsstöðum í Laxárdal. — Ingibjörg Þorsteins-
dóttir, ekkja séra Hjalta, hefir verið búandi á Jarlsstöðum
1768.
13. Bergur Magnússon, f. um 1725, d. 24. ágúst 1767 (1754
—1767). Hann var Svarfdælingur. Voru foreldrar hans Magnús
Ingimundarson á Köngustöðum í Svarfaðardal og kona hans
Ólöf Guðbrandsdóttir. Varð stúdent úr Hólaskóla 1747 og síð-
an í þjónustu Halldórs biskups Brynjólfssonar og ráðsmaður
fyrir ekkju hans fardagaárið 1753—54. Fékk Nes 13. okt. 1754.
Er talinn meðal hinna bágstöddustu presta nyrðra. Kona hans
var Sigríður Eggertsdóttir prests í Stærra-Árskógi, Sæmunds-
sonar. Meðal 7 barna þeirra voru: Ingibjörg, er átti Jósafat
Pálsson á Hömrum í Reykjadal, og Sesselja, er átti Kristján Jós-
efsson á Halldórsstöðum, og voru þau foreldrar Jóns í Sýrnesi
og Jóhannesar hreppstjóra á Laxamýri. Séra Bergur var talinn
laglega gáfaður og ritari góður.
14. Einar Árnason, f. um 1740, d. 30. marz 1822 (1767—
1784). Faðir hans var talinn Árni Magnússon í Hjálmarvík,
síðar í Leirhöfn á Sléttu (en almælt var, að séra Jóhann Krist-
jánsson á Svalbarði, síðar á Mælifelli, væri faðir séra Einars,