Kirkjuritið - 01.03.1959, Page 31
KIRKJTJRITIÐ
125
og þótti hann líkjast honum). En móðir séra Einars var Þórdís
Jónsdóttir frá Bakka á Tjörnesi, Jónssonar. Þegar hann var 12
ára fór hann að Oddsstöðum á Sléttu til auðugrar konu, Guð-
rúnar Eiríksdóttur. Gaf hún honum síðan próventu sína, um
það leyti, sem hann varð prestur í Nesi.
Hann var tekinn í Hólaskóla 1758 og stúdent þaðan 1764.
Var síðan heimiliskennari á Möðruvöllum hjá Lárusi Scheving
klausturhaldara, þar til hann fékk Nes 5. okt. 1767, en vígðist
9. nóv. sama ár. Fékk Sauðanes 1784 og hélt þann stað til 1812.
Andaðist á Sauðanesi 1822. Hann var maður vel að sér, göfug-
lyndur og höfðingi að rausn, enda vel látinn. Lét hann sér mjög
annt um æðarvarpið á Sauðanesi og fékk verðlaun fyrir það
úr konungssjóði 1789.
Kona séra Einars var Margrét Lárusdóttir klausturhaldara
Schevings, sem áður er nefndur og sat hér í Garði í Aðaldal
samtímis þeim hjónum í Nesi. Meðal barna þeirra voru: 1. Séra
Stefán á Sauðanesi og 2. Hálfdan á Oddsstöðum, er átti Hólm-
fríði Þórarinsdóttur frá Hólum í Laxárdal.
15. Jón Stephánsson, f. 28. sept. 1754, d. 16. des. 1819 (1784
1797). Foreldrar hans voru séra Stefán Halldórsson að Lauf-
ási og kona hans Þuríður Jónsdóttir prests að Myrká, Ketils-
sonar. Var tekinn í Hólaskóla 1769 og stúdent þaðan 1775 með
sæmilegum vitnisburði. 1778 var lagt fyrir hann að verða prest-
Ur í Grímsey, og vígðist hann þangað s. á. Þar veiktist hann
af óhollu vatni og fór alfari í land 1783, fyrst til föður síns,
sem þá var að Myrká, en fékk sér veitt Nes 3. marz 1784. Sat
þar til 1797, er hann fékk Helgastaði, og sat hann þar til ævi-
lQka. Hann þótti allvel að sér, var einkar hneigður til jarð-
yrkju og fékk 10 ríkisdala verðlaun fyrir garðrækt, þegar hann
var í Nesi. Mun enn sjást móta fyrir görðum hans í lautinni
norðan við bæinn í Nesi. Hann var og talinn heppinn læknir.
Fyrri kona séra Jóns var Rannveig Jónsdóttir frá Grenivík
1 Grímsey, og var son þeirra Antoníus faðir Antoníusar skálds,
er drukknaði í Daufhyl. — Síðari kona séra Jóns var Helga
^agnúsdóttir frá Myrkárdal. Voru þau systkinabörn og fengu
leyfi til hjúskapar. Meðal barna þeirra voru: 1. Stefán umboðs-
^aður á Snartarstöðum, 2. Rannveig kona Jóns Kristjánssonar
1 Sýrnesi, og 3. Hólmfríður, seinni kona Björns Jónssonar danne-
úrogsmanns í Lundi.