Kirkjuritið - 01.03.1959, Síða 36

Kirkjuritið - 01.03.1959, Síða 36
130 KIRKJURITIÐ kominn, vel þokkaður og vinsæll í sóknum sínum og góður kennimaður. Talið er, að hann hafi messað nokkrum sinnum hér í Nesi, eftir að hann var settur af, án þess að þær messur kæmust á skýrslur. En annars þjónuðu þeir Nesi á þessum ár- um, séra Benedikt Kristjánsson, þá aðstoðarprestur í Múla, og séra Jón Kristjánsson, bróðir hans, á Yztafelli, unz Nespresta- kall var lagt niður og sameinað Múla með konungsúrskurði 29. júní 1860. Kona séra Guðmundar var Guðrún Þorkelsdóttir úr Reykja- vík (og þó af norðlenzkum ættum). Áttu þau hjón a. m. k. 3 börn, er upp komust, og eiga þau enn eitthvað af niðjum. En Kristín Guðmundsdóttir, laundóttir séra Guðmundar og Sig- ríðar, giftist Eyjólfi bónda Ólafssyni í Sviðnum á Breiðafirði, og eiga þau afkomendur. Ritað er, að séra Vigfús Guttormsson, síðar prestur að Ási í Fellum, hafi fengið veitingu fyrir Nesi 1852. En hann mun aldrei hafa tekið hér við embætti. Enda fékk hann Ás í Fellum 1854. Sonur hans var Björgvin Vigfússon sýslumaður í Rangár- vallasýslu, d. 1942. Konráö Vilhjálmsson. • Það var dag nokkurn, að loknum tveggja stunda viðræðum við MacMillan forsætisráðherra, að ég spurði hann, á hvað hann tryði mest. Ég gat búizt við, að hann svaraði: Bretland, Sameinuðu þjóð- irnar, Samband Breta og Bandaríkjamanna, tilviljanirnar, valdið, fólkið, eða sjálfan sig. En svar hans var: „Guð.“ — Jolm Guntlier. Á hernámsárum Þjóðverja í Belgíu í fyrri heimsstyrjöldinni fór hrokafullur hershöfðingi eitt sinn á fund Max borgarstjóra í Briissel. Hann hóf viðræðurnar með þvi að þrífa dólgslega ægileg morðvopn úr belti sínu og leggja fram á borðið hinum til áminningar. Borgar- stjórinn lét sér ekki bylt við verða, en greip hátíðlega til sjálfblek- ungs síns, skrúfaði af honum hettuna og lagði hann síðan kyrfilega við hliðina á byssunum. — Herbert Hoover. Á banadægri var Melanchton að þvi spurður, hvort hann æskti sér einskis ennþá. „Einskis annars en himinsins", svaraði hann. „Hve mikið lét hann eftir sig?“ var spurt við dánarfregn auðmanns nokkurs. „Allt!“ var svarið. (Matthiesen).

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.