Kirkjuritið - 01.03.1959, Side 40

Kirkjuritið - 01.03.1959, Side 40
134 KIRKJURITIÐ ur, sem ég hefi það eitt út á að setja, að hann er næst- um því of góður fyrir leikhúsið.“ Peter Thun Foersom orti töluvert í bundnu máli. Voru kvæði hans gefin út nokkru eftir andlát hans. Fylgdi Adam Oehlenschláger þeim úr hlaði með snjöllum ljóðlínum. Foersom og konu hans varð sex barna auðið. Þau voru alin upp í guðsótta og góðum siðum. Hann var trúrækinn maður, fastheldinn við feðratrú sína, las mikið Biblíuna og var maður mjög heimilisrækinn. Ibúð hjónanna var þröng, og efnin oft lítil, en andi sam- úðar og gagnkvæmrar elsku bætti upp þrengslin, svo að allir undu glaðir við sitt. — Maður nákominn Foersom og heimilisvinur kemst þannig að orði, er hann lýsir heim- ilislífi hans: „Hann var öllum tómstundum hjá fjölskyldu sinni, las, skrifaði og lærði utan að í sömu litlu stofunni, þar sem konan og eldri börnin voru að störfum, og hin minni léku sér með hávaða og ærslum.“ Við þessa lýsingu á heimilislífi Foersoms má bæta stuttu kvöldbæninni, og hún segir mest. I henni finnum við þann kvöldfrið og djúpu kyrrð, sem ríkt hefir í barnaherberg- inu, þegar börnin voru lögzt til náða. Víst má telja, að versið er skrifað sem kvöldbæn fyrir hans eigin börn, og að þau hafa haft hana yfir á hverju kvöldi, meðan þau voru lítil. Prentað var versið fyrst árið 1813. íslenzkar mæður og börn hafa um langt skeið átt þessu skáldi, og Sveinbirni Egilssyni, mikið að þakka, því að fá- ar kvöldbænir eigum við fegri, fáar eða engar, sem falla betur að barnshjartanu: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt.. Sigurjón GuÖjónsson.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.