Kirkjuritið - 01.03.1959, Síða 41
Samtíningur utan lands og innan.
Á ekki að afnema prestskosningarnar? — Þessi spurning
er að komast á dagskrá núna, og er það vel. Svo er að sjá
á Mbl., að varaforseti Kirkjuráðs, Gísli Sveinsson, hafi hreyft
þessu máli á Kirkjuþingi (utan dagskrár?) og sé þvi ein-
dregið meðmæltur að afnema þær. — Á sömu skoðun er
ritstjóri Alþýðubl., Helgi Sæmundsson. Hann ræðir málið
í þingfréttum í blaði sínu 21.okt. Hann hvetur þingmenn
til að flytja frumvarp um afnám prestskosninga og afgreiða
sem lög nú þegar. Grein sinni lýkur ritstjórnin á þessa leið:
„ . . . Prestskosningarnar eru hneyksli. Þær aúka flokka-
drátt og sundrung í kirkjunni og torvelda mörgum prestum
að rækja embætti sín, en koma að engu gagni. Presta á ekki
að kjósa fremur en lækna eða sýslumenn. Og satt að segja
finnst mér furðulegt, að prestastéttin skuli ekki fyrir löngu
hafa risið upp sem einn maður gegn þessum ósóma. Hér get-
ur Alþingi unnið þarft verk — og því fyrr því betra.“
Um þetta skal ekki fjölyrt að sinni, en þess er að vænta,
að þetta mál verði tekið til umræðu og yfirvegunar á presta-
stefnu og kirkjuþingi hið allra fyrsta.
*
Snemma á þessu ári kom út i Englandi bók eftir C. 0.
hhodes, enskan prest, sem er ritstjóri Church of England
Newspaper. Bókin heitir: The new Church in the new Age.
Höf. birtir margar alvarlegar staðreyndir um ástandið i kirkju-
uaálum í Bretlandi. Hér er ein þeirra: Árið 1901 var kirkju-
sóknin 35,5%, árið 1935 var hún 17,7% og 1948 var hún
komin niður í 13%. — Þessi bók er að öllu hin merkasta.
Prestar ættu að afla sér hennar í bókasöfn prestakallanna.