Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 4
Ávarp forseta íslands.
Prestastefna 24. júní 1959.
Virðulega prestastefna og aðrir kirkjugestir!
Okkur hjónunum er það sérstök ánægja, að taka á móti
yður hér á Bessastöðum á þessum heiða og hlýja Jóns-
messudegi, og fagnaðarefni, að þessi virðulega athöfn fer
hér fram í kirkju staðarins. Án kirkjunnar væru Bessa-
staðir ekki það, sem þeir eru. Við bjóðum yður öll vel-
komin, og þökkum hlýlega kveðju, sem barst í gær.
Vér hittumst nú iiér á tímamótum tveggja biskupa.
Biskupsembættið er hið elzta embætti íslenzku þjóðar-
innar, og héldur tign sinni og virðingu. Vér þökkum hin-
um fráfarandi biskwpi störf og samstarf. Hann hefir reynzt
farsæU formaður islenzkrar þjóðkirkju, og er nokkuð sér-
stæður um það, að láta af störfum í fullu fjöri og með
óskertum starfskröftum. Hann lætur að vísu af embætti
— en ekki af störfum. Hann hefir caracter indélebilis sam-
kvæmt sinni vtgslu, og heldur áfram að vera Herra Ás-
mundur. Við hinn nýja biskv/p eru miklar vonir tengdar,
og óþarft að lofa hann „í hendur Krists“. Veri hann hjartan-
lega vélkominn. En bak við — eða til beggja handa öUum
biskupum, stendur prestastétt landsins, og gott til þess að
vita, að hún er vél skipuð.
Þjóðkirkjan er élzta stofnun landsins, næst Alþingi.
Bæði kirkjan og þingið fá stundum orð í eyra, en íslend-
ingum er þar fyrir sárt um þessar stofnanir. Ræturnar
standa djúpt í sögu landsins, og limið er slungið saman við
íslenzka menningu og allan vorn hugsunarhátt. Hvað sem
dægurdómum líður, þá eigum vér framtíðina undir kristni
og þingstjórn, og ég trúi, að fáir myndu i þess stað kjósa
nokkurs konar heiðni né einræði í fuUri alvöru.
Vér minnumst enn með þjóðarstólti kristnitökunnar, sem