Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 32
318
KIRKJURITIÐ
Samband við erlend kirkjufélög.
Á synódusárinu var enginn stjórnarfundur haldinn í Kirkna-
sambandi Norðurlanda. Er mér óljóst, hvað valdið hefir, nema
vera kunni lát forsetans, Kristians Hanssons ráðuneytisstjóra
í kirkjumálaráðuneytinu norska. Var allt samstarf með hon-
um mjög ánægjulegt.
Þjóðkirkja íslands tók nokkurn þátt í hjálparstarfi Lúterska
heimssambandsins, sendi hún um 4 smálestir af meðalalýsi til
Hong Kong og 1 til Póllands, og 1 smálest af saltfiski til Jerú-
salem. Er í þessum efnum farið að ráðum Heimssambandsins,
sem veit glöggt, hvar þörfin er mest.
Fjársöfnun til slíkra gjafa þarf að halda áfram undir for-
ystu prestanna og biskups og fara vaxandi. Einkum mun vera
voðaleg eymdin og neyðin í Hong Kong.
Fjármál.
Ekknasjóður íslands var um síðustu áramót 136673.01 kr.,
og hafði þannig vaxið á árinu 1958 um kr. 27065.84. Eftir nýár
var honum afhent viðskiptabók við Sparisjóð Reykjavíkur með
12424.51 kr. innstæðu, þar af 7783 kr. gjöf frá féhirði sjóðs-
ins, Einari Jónssyni, ágóði af sýningum í Tívolí sumarið 1958.
Ennfremur veitti Líknarsjóður íslands Ekknasjóði 5000 kr., og
á merkjasöludegi Ekknasjóðs 8. marz söfnuðust alls 38235.16
krónur.
Úr sjóðnum er nú í fyrsta sínn veittur styrkur, tveimur
ekkjum, annarri 7000 kr. og hinni 3000 kr.
Styrktarsjóður áfengissjúklinga.
Fjársöfnun til skýlis drykkjumanna nam alls 86128.34 kr.
Af því fé var greitt fyrir gisting drykkjumanna í Herkastal-
anum 25. jan.—30. apríl f. á. 25365.90 kr. En stofnkostnað all-
an greiddi Reykjavíkurbær, svo sem legubekki og rúmfatnað.
Ekki þótti tiltækilegt að reka gistiskýli síðastliðinn vetur, af
ýmsum ástæðum, og var því horfið að því ráði að stofna sér-
stakan sjóð, „Styrktarsjóð áfengissjúklinga“, og leggja í hann
eftirstöðvar fjársöfnunarinnar 60762.44. En Reykjavíkurbær
samþykkti að leggja fram á móti 55462.40 kr. Verður sjóður
þessi afhentur Bláa Bandinu með þeirri skyldukvöð, að það