Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 48

Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 48
334 ICIRKJURITIÐ ákaflega fróðlegt og heillandi efni. Það opnar ný sjónarsvið. Vísindamennirnir virðast sammála um, að einhvern tíma í fjar- lægri framtíð muni að því reka, að jörðin næri ekki hinn minnsta lífsvott framar. Löngu áður en komið er á þetta stig, verður mannkynið útdautt, rétt eins og margar tegundir þeirra lífvera, sem ekki gátu samlagazt breyttum aðstæðum. Varla er unnt að komast hjá að draga af þessu þá ályktun, að úr því svona fer, sé allt þetta þróunarstand vita gagnslaust, já, raunar sé öll sú framrás, sem leiddi til sköpunar mannsins, stórkostlega fáránleg af náttúrunnar hendi. Legg ég þá sömu merkingu í orðið stórkostlegur og þegar rætt er um eldgos í Kilauea eða Mississippi í stórflóði — fáránlegt er það, hvað sem öllu öðru líður. Því að enginn hugsandi maður getur börið á móti því, að óhamingjan hefir skipað svo mörgum sinnum meira rúm en hamingjan í allri veraldarsögunni. Aðeins stopular stundir hef- ir maðurinn lifað án þess að óttast, að sér ógnuðu voveifleg endalok. Hitt er ekki rétt, sem Hobbes fullyrti, að það væri aðeins á frumstigi, sem mannlífið væri einmanalegt, fátæk- legt, viðbjóðslegt, grimmúðugt og skammvinnt. Trúin á annað líf hefir á umliðnum öldum heitið mörgum hæfilegum upp- bótum fyrir alla erfiðleika hinnar stuttu dvalar í þessum sorg- ardal.. Þeir eru sælir. Trúin ieysir fyrir þá, sem hana eiga, úr vandamálum, sem skynseminni virðast óleysanleg. Sumir hafa eignað listinni gildi, sem réttlæti hana hvað sem öðru líði, og þeir hafa talið sér trú um, að ófarir alls almennings væru ekki of hátt gjald fyrir hina dýrðlegu framleiðslu málarans og skáldsins. Ég lít þessa afstöðu óhýru auga. Mér virðast þeir heimspek- ingar hafa haft rétt fyrir sér, sem staðhæfðu, að gildi listar fælist í áhrifum hennar. Af því drógu þeir þá eðlilegu ályktun, að gildi hennar fælist ekki í fegurð, heldur réttum verknaði. Því að áhrif eru einskisverð nema þau hafi einhverja skapandi afleiðingu. Sé listin aðeins til unaðar, þá hefur hún enga veru- lega þýðingu, hve andleg sem hún er. Henni er þá líkt farið og útskurðinum á súlnahöfðunum, sem hinar miklu hvelfingar hvíla á. Fegurð þeirra og margbreytni gleður augað, en þeirra er engin nauðsyn sakir byggingarinnar. Leiði listin ekki til ákjósanlegra athafna, er hún ekkert annað en deyfilyf fyrir menntalýðinn. Ekki þarf því að gera sér neinar vonir um, að listin létti neitt

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.