Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 31

Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 31
KIRKJURITIÐ 317 endurtaki hér nokkuð af því, er þar stendur. Vil ég aðeins leggja mikla áherzlu á það, hvers virði það er fyrir kirkjuna að eignast slíka stofnun sem kirkjuþing er. Að vísu tel ég Al- þingi ekki hafa að þessu sinni tekið nægilegt tillit til samþykkta þess. En ég hygg, að á komandi árum fari áhrif kirkjuþingsins vaxandi. Sérstaklega vil ég geta eins þeirra mála, sem tekin voru til meðferðar: Tillögu til þingsályktunar um starfssjóð hinnar evangelisk-lútersku kirkju á Islandi. Fluttu þeir hana Stein- grímur Benediktsson og Sigurður Gunnarsson. Var tillagan sem hér segir: „Kirkjuþingið ályktar að beina til Alþingis til- mælum um heimild til að hækka sóknargjöldin um kr. 5.00 á hvern gjaldskyldan safnaðarmeðlim að viðbættri vísitölu. Fé það, sem þannig kemur inn, skal renna í sérstakan sjóð, sem Kirkjuráð ber ábyrgð á og veitir fé úr. Hlutverk sjóðsins skal vera að styðja sérhvað það, sem verða má til uppörvunar, fræðslu og uppbyggingar í kristilegu starfi.“ Málinu var vísað með samhljóða atkvæðum til Kirkjuráðs, er ákvað að leita um það álits safnaðarfunda og héraðsfunda. Skrifaði ég því næst sóknarnefndum og safnaðarfulltrúum, m. a. á þessa leið: „Málið er hið merkasta og gæti orðið til eflingar starfi kirkjunnar. Einkum er það tvennt, sem mjög þarf að vinna að í söfnuðunum: Að fegra og bæta kirkjusöng- inn og glæða kristilegt æskulýðsstarf og sunnudagaskólahald. Myndi jafnvel nauðsynlegt að ráða mann til þess að ferðast um landið og veita aðstoð til stofnunar kristilegra æskulýðs- félaga og láta alls konar leiðbeiningar í té í slíkum málum. Mætti ætla, að söfnuðir myndu skjótt finna, að þessari litlu hækkun á kirkjugjaldi væri vel varið. Þess er vænzt, að málið verði rætt og athugað sem bezt.“ Kirkjuráð. Hið nýja kirkjuráð, sem kosið var af kirkjuþingi, hélt með biskupi fundi 22. og 29. október, 6. nóv. og 19.—21. jan. Hefir þegar verið skýrt frá helztu samþykktum þess í Kirkjuritinu, og læt ég nægja að vísa til þess. í ráðinu eru þessir menn: Biskup íslands, forseti, Gísli Sveinsson, varaforseti, séra Jón Þorvarðsson, séra Þorgrímur Sigurðsson og Þórarinn Þórarins- son skólastjóri.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.