Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 27
KIRKJURITIÐ
313
veitingu Alþingis til hennar. En hún var í fyrra 1200000 kr.
og í ár er hún aðeins 500000 kr. Eftir er að einangra kirkjuna,
múrhúða og setja í hana hitalagnir. Bókfærður kostnaður við
hana er nú um 2y2 miljón, en ætla má, að miljón krónur þurfi
til að fullgera hana.
í fyrra var unnið við kirkjuna fyrir um 210000 kr., við hús-
ið fyrir um 97000 kr. Lóð var lagfærð og endurreist jarðgöngin
fornu. Kostnaður við það og annað fleira var um 160000 kr.
Gluggar í kirkjuna munu koma á þessu sumri. Þeir eru gerð-
ir eftir uppdráttum Gerðar Helgadóttur.
Bygging prestsseturshúsa.
Fjárveiting til byggingar prestsseturshúsa lækkaði um 5 af
hundraði á þessu ári, eins og fjölmargar aðrar fjárveitingar,
og varð ekki að gjört. Framkvæmdir eru því með minna móti,
enda hefir byggingarkostnaður hækkað mjög.
Byggingu prestsseturshúss í Langholtssókn er að mestu lok-
ið, en eftir að ganga frá lóð.
í Sauðanesi er eftir að húða húsið utan og að Tjörn að full-
gera rishæð og mála húsið.
Að Stað í Súgandafirið er prestsseturshús uppsteypt, og fok-
held orðin húsin á Hrafnseyri, Patreksfirði og að Kolfreyjustað.
Á ýmsum stöðum hafa verið framkvæmdar viðgerðir og end-
urbætur, en sökum fjárskorts hefir ekki verið unnt að ljúka við
neitt.
IJr skýrslu söngmálastjóra.
Frá 1. júní 1958 til 1. þ. m. hafa verið stofnaðir 5 kirkju-
kórar: Sleðbrjótskirkju í N.-Múlaprófastsdæmi, Seláss og Ár-
bæjarbyggða í Kjalarnessprófastsdæmi, Melstaðarkirkju í Húna-
vatnsprófastsdæmi, Staðarbakkakirkju í sama prófastsdæmi og
Saurbæjarsóknar í Kjalarnessprófastsdæmi. Þannig hafa alls
verið stofnaðir 199 þjóðkirkjukórar.
Þeim kórum f jölgar stöðugt, sem annast ekki aðeins söng við
kirkjulegar athafnir, heldur einnig á öðrum samkomum og
ganga í kirkjukórasamband héraðs síns og Kirkjukórasamband
íslands.
Mikil þörf er á því, að barnakórar verði einnig stofnaðir við
kirkjurnar.