Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 5
KIRKJURITIÐ
291
hér varð með þingrœðislegum Jiætti. Siðaslúptm hafa og
staðizt próf sögunnar. Þar blandast þó inn í erlent kon-
ungsvald, sem engum kemur til hugar að eigi að hafa
váld á trú þjóðarinnar né eignum landsmanna. Auk þess
em deilur sextándu aldarinnar um margt fymdar, bæði
tri úarhugmyndir og þó sérstáklega um stjórnarfar. Islenzk
kirkja er kristileg, og almenn að pví leyti, en hefir þó
varðveitt sinn sérstáka svip. Það finna ei'lendir menn
fljótt, sem hingað koma. Að gera fuha grein fyrir því,
væri langt mál, og jafn víðtækt og að skýra og skilgreina
sjálft islenzkt þjóðemi. Enn ÖU finnum vér, að það er
eitthvað, sem hvorki vei'ður rnælt né vegið, sem gerir þjóð-
ina að sjálfstæðri hringiðu í timans straumi.
Þó vart sé rétt að tala um nema ein siðaskipti, þá er hver
kynslóð nokkuð með sínum blæ, og í kirkjulegum efnum hafa
timabilin stundum fengvð svip af sinum biskupum. Trúar-
skoðanir eru breytingum undirorpnar eftir vaxandi — eða
minnkandi — þekkingu og tíðaranda, sem gengur í öldum.
AUt líf er á hreyfingu. Og þótt guðspjöUin vari, þá stendur
háskólaguðfræðin ekki i stað, og nær á stundum ótrúlega
skammt út til almennings. En um það er ekki að sákast,
því að svo er um ÖU heimspekikerfi. Það hefir áldrei tekizt
að semja á skrifstofu trú, sem fullnægir mannsins hjarta.
Mér þykir áUtaf vænt um söguna af TáUeyrand, þegar
þeir ætluðu i frönsku byltingunni að setja gyðju skyn-
seminnar, sem reist var á torgi, í stað kristindómsins,
en fannst heldur dauft yfir dýrkuninni. Þeir komu þá
nokkrir á fund hins vitra manns, og spurðu ráða. Svar
hans var á þessa leið: ,JTvernig væri það, ef þið létuð t. d.
krossfesta ykkur, og ég tála nú ékki um, ef þið risuð svo
upp á þriðja degi — þá væri öUu borgiðu.
Trú og skoðun er ekki hið sama, og þess ber vél að gæta,
áð það er hin mesta áhætta fyrir öU trúarbrögð að spyrrn
á móti nýrri þékking. Slík íspyrna hefir orðið kirkjunni
hvað dýrkeyptust, og erfitt að kippa aftur í liðinn, eins
og sagan hefir sýnt síðustu aldir. Sú framför, sem orð-