Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 14

Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 14
Bréí erkibiskupsins í Kantaraborg til biskups íslands hins nýja. Lambeth Palace, S. E. I., 18. júní 1959. Kæri, herra biskup. „Náð og friður frá Guði föður og frá Drottni vorum, Jesú Kristi“. Þó að ég sjái mér ekki fært að vera sjálfur viðstaddur, er þér verðið vígður biskup Islands 21. júní, er mér sönn ánægja að senda séra John Satterthwaite sem umboðsmann minn. Ég vil fullvissa yður um, að góðvild, samfélagsandi og bænir berast frá kirkju Englands. Vér biðjum þess, að þér megið vera bú- inn allri náð heilags anda, svo að þér megið verða sannur hirðir þeirrar hjarðar Krists, sem yður er trúað fyrir. Ég veit það og fagna því, að vígsla yðar leiðir til þess, að kirkja Englands mun geta treyst þau vináttubönd, sem hún hefir þegar tengt við hina íslenzku kirkju. Á þessum tímum, er ókyrrð og viðsjár ríkja þjóða á milli, er öllu öðru mikil- vægara, að kristnir menn laðist hver að öðrum sem bræður i Kristi og stuðli að þeirri einingu, sem er hinum blessaða vilja Drottins þóknanleg, svo að vér getum á áhrifameira hátt kunn- gjört hjálpræðisboðskap hans og flýtt fyrir komu ríkis hans, ríkis réttlætis, friðar og kærleika. Um leið og ég sendi yður bróðurkveðju og blessun mína, leyfi ég mér einnig að taka fram, hversu mikils vér, þjónar hinnar ensku kirkju, höfum metið heimsóknir íslenzkra klerka, sem hafa iðkað nám hér á landi á síðari árum. Vér vonum, að unnt verði að halda áfram þessum gifturíku skiptum og styrkja þannig þá hlekki, sem þegar tengja oss. „Megi Guð friðarins, er leiddi aftur fram frá dauðum hinn mikla hirði sauðanna, með blóði eilífs sáttmála, Drottin vorn Jesúm, fullkomna yður í öllu góðu til að gjöra vilja hans“. (Hebr. 13, 20—21). Yðar elskandi bróðir í Kristi, Geoffrey Archbishop of Canterbury Primate of all England and Metropolitan.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.