Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 11

Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 11
Dr. Franklin Clark Fry, Hann var tignastur og valdamestur þeirra kirkju- höfðingja, sem hingað komu að biskupsvígslunni. Mun enginn slíkur ráðamaður innan kirkjunnar hafa stig- ið hér fæti, ef litið er al- mennt á forystu hans. Hann er maður á bezta aldri, hár og vörpulegur, fríður sýn- um, stilltur í fasi og ljúf- mannlegur, geðþekkur og tiginmannlegur. Ræður sínar flutti dr. Fry blaðalaust, en hér fer á eftir lauslegt ágrip af ávarpi, er hann flutti í viðtali við Ríkis- útvarpið. Hann kvaðst hafa haft góðar spurnir héðan. Þess vegna hefði sér orðið það til enn óblandaðri ánægju, að sjá hið stórbrotna land, og kynnast þjóðareðlinu upp á eigin spýtur. Rómaði hann gestrisni hér og taldi að vikan, sem hann dvaldi á íslandi væri meðal þeirra skemtilegustu og minnisverð- ustu, sem hann hefði lifað. Hann kom hér samkvæmt boði herra Ásmundar Guð- mundssonar til þess að vera

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.