Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Síða 7

Kirkjuritið - 01.07.1959, Síða 7
Ávarp í Bessastaðakirkju 24. júní 1959. Sumir sálmarnir í Biblíunni voru ortir og fluttir, þegar kon- ungar voru smurðir eða krýndir til ríkis, og eru af fræðimönn- um nefndir konungssálmar. Löngum hafa þjóðirnar séð í höfð- ingjum sínum tákn lífs síns, hásætið geymdi fjöregg lýðsins, þar bjó hamingja lands og þjóðar, og ef hún flúði þaðan, var þjóðargiftan þrotin. Svo litu flestar þjóðir á um lengstan aldur. Hugmyndir hafa breytzt, konungdæmi á foma vísu er úr sögunni, forseti nútímalýðveldis er á annan hátt merkisberi þjóðar en konungar fyrri alda. En allt um það skiptir það hvert ríki miklu, hvernig æðsta sæti hennar er skipað og hver þjóð má vissulega enn í dag sjá þar ímynd auðnu sinnar, sem sá maður er, sem hún hefir þangað kjörið. En þegar vér lesum konungssálma Biblíunnar, kynnumst vér ekki aðeins fornum hugmyndum um konungdóm. Þær bæn- ir, sem ísrael flutti fyrir konungi, fela í sér stefnuskrá, mann- félagshugsjón. „Guð, veit konungi rétt þinn,“ segir að upphafi 72. sálms, svo að dæmi sé tekið. Réttur Guðs eða réttlæti er á máli Biblíunnar sá máttur Guðs, sem réttir það, sem er rangt, skapar rétta menn, sanna menn og þar með rétta, heilbrigða mannlega háttu. Og hvernig kemur þetta út í pólitískri fram- kvæmd? í sanngjörnum lögum, árvakri og réttvísri löggæzlu, öruggu réttarfari. Þjóðhöfðingi og þjóðfélag voru eitt í þá daga. Bænin fyrir konungi var jafnframt brýning og yfirlýsing um það, hvernig þjóðin skyldi skipa málum sínum. Það hlýtur að vekja athygli hvers lesanda þessara fornu sálma, hvílík áherzla er lögð á það að annast fátæka og bágstadda. Slíkir menn standa hjarta Guðs nærri, og hann krefst þess, að vel sé fyrir þeim séð. Fremsta skylda valdhafans er að sjá til með þeim, sem eiga minnst undir sér, hjálpa þeim, gæta réttar þeirra, hindra alla rangsleitni, ofbeldi og kúgun.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.