Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Side 16

Kirkjuritið - 01.07.1959, Side 16
302 KIRKJURITIÐ auðsvarað. En djúp alvöruorð eru rituð á auðnirnar um af- máðar minningar horfinna alda. Þegar ég kom frá þessum alvöruorðum íslenzkrar náttúru og sögu til guðsþjónustuhalds ykkar, á þjóðhátíðardeginum og vígsludeginum í dag, fann ég þó svar. Þessi guðsþjónusta kom mér ekki ókunnuglega fyrir. Ég kunni mörg sálmalögin og gladdist yfir öðrum, sem ég kannaðist ekki við. Ég gat komizt til skilnings á sálmunum, og sumt var mér gamalkunn- ugt. Kirkjan sjálf, gangur altarisþjónustunnar, búningur prest- anna —allt þetta sagði við mig: Sá staður er til, þar sem við höfum gefið og þegið sem kristnir bræður. í kirkju Guðs höf- um við skipzt á þeim auðæfum, sem hann hefir trúað oss fyrir. Vér höfum gefið yður sálma Brorsons og Grundtvigs, og þið okkur sálma Hallgríms Péturssonar. Friðrik Friðriksson finnst okkur við eiga með ykkur. En, bræður íslenzku kirkjunnar, við eigum enn aðeins upp- haf þess samfélags, sem við skuldum hverir öðrum. Nú, þegar ekki er lengur farið frá Reykjavík til hinna Norðurlandanna en áður var riðið frá Hlíðarenda að Bergþórshvoli, verðum við að verja meiri tíma til þess að kynnast hverir öðrum, til meiri þroska og meiri auðlegðar í samfélagi við Guð. Við verðum að leita speki og hollráða hvorir til annarra, svo sem þeir gerðu, Gunnar og Njáll. Ég flyt kveðju dönsku kirkjunnar. Ég óska biskupnum ykkar nýja Guðs blessunar, kraftar andans og kærleika og vizku til þess að leysa af hendi hlutverkið mikla og erfiða, sem fram- undan er. Ég óska þér þess, Sigurbjörn Einarsson, að árin, sem Guð gefur þér til biskupsþjónustu á íslandi, auðkennist af krafti fagnaðarerindisins og gleði Andans yfir íslenzku kirkjunni. Verði einnig samfélag hennar við hinar Norðurlandakirkjurnar nánara og auðugra. Við hátíðina eftir biskupsvígslu sjálfs mín sagði Eidem erkibiskup við mig, að ég væri ekki aðeins vígður biskup dönsku kirkjunnar, heldur kirkju Norðurlanda. Þess vegna hlýt ég að hafa leyfi til þess að bjóða þig velkominn í dag, ekki aðeins sem biskup í kirkju íslands, heldur einnig í kirkjum Norðurlanda. Guð blessi kirkju íslands og biskup hennar hinn nýja. Halfdan Htgsbro.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.