Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 20

Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 20
Yfirlitsskýrsla biskups. Eins og á undanförnum prestastefnum mun ég gjöra nokkra grein fyrir störfum og hag kirkju vorrar á liðnu sýnodusári. Ber þar hæst lögmœtt biskupskjör og biskupsvígslu hins nýja biskups íslands, herra Sigurbjarnar Einarssonar, sem vér höf- um þegar heilsað og boðið velkominn til hinna vandasömu og ábyrgðarmiklu forystustarfa. Megi þeim fylgja heill og blessun. Látnir prestar. Þessir prestar hafa látizt á sýnódusárinu: Séra Jón Noröfjörö Jóhannessen andaðist 21. júlí kominn fast að áttræðu, fæddur 6. október 1878. Hann vígðist aðstoðar- prestur að Kolfreyjustað 20. sept. 1903. Var prestur að Sandfelli í Öræfum 1905—1912. Að Staðastað 1912—1922. Að Stað í Steingrímsfirði 1922—1923 og 1929—1941. Að Breiðabólsstað á Skógarströnd 1923—1929 og 1941—1946. Eftir það hafði hann um skeið prestsþjónustu á hendi í Mosfellsprestakalli í Gríms- nesi og Ofanleitisprestakalli í Vestmannaeyjum. Hann kvæntist 1904 Þuríði Filippusdóttur, bónda í Gufunesi. Þau eignuðust 3 dætur. Hann missti konu sína 1936. Séra Jón var skyldurækinn prestur og mjög vel látinn af söfnuðum sinum. Hann hafði aflað sér nokkurrar þekkingar í læknisfræði, og kom hún oft að góðum notum. Hann var bjart- sýnismaður, glaður og reifur, trúr sonur kirkju sinnar. Séra Björn Stefánsson, prófastur frá Auðkúlu, andaðist 10. nóvember á 77. aldursári, fæddur 13. marz 1881. Hann vígðist prestur að Tjörn á Vatnsnesi 6. október 1907 og hélt því presta- kalli til 1912. Þá varð hann prestur í Garðaprestakalli á Álfta- nesi og þjónaði þar til fardaga næsta ár. Síðan prestur í eitt ár í Reynistaðarklaustursprestakalli. Þá í Bergsstaðaprestakalli 1914—21 og loks í Auðkúluprestakalli í 30 ár 1921—1951.. Tuttugu síðustu prestsskaparárin var hann jafnframt prófastur. Sum árin hafði hann einnig með höndum aukaþjónustu. Hann kvæntist 1910 Guðrúnu Sigríði Ólafsdóttur, prófasts í Hjarðarholti, og eignuðust þau 4 börn. Hann missti hana eftir 8 ára sambúð. Árið 1930 kvæntist hann 2. sinni Valgerði Jó-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.