Kirkjuritið - 01.07.1959, Side 23
KIRKJURITIÐ 309
tryggur vinur í raun og skapgerðin traust, söngelsk og fríð
sýnum.
Frú Rebekka Jónsdóttir, ekkja séra Guðmundar Guðmunds-
sonar í Gufudal, andaðist 29. maí 94 ára að aldri, fædd 15. maí
1865. Hún var gáfukona mikil, sem hún átti kyn til, og dreng-
ur góður, fríð sýnum og prýðilega máli farin.
Frú Guörún Hermannsdóttir, ekkja séra Eggerts Pálssonar
á Breiðabólsstað, lézt 4. þ. m., 93 ára að aldri, fædd 18. marz
1866. Hún var rausnar og höfðingskona, vinmörg og mikils
virt.
Vér biðjum Guð að blessa þessar konur og vottum þeim virð-
ingu og þökk með því að rísa úr sætum.
Lausn frá prestsskap.
Lausn frá prestsskap fékk frá síðustu fardögum séra Jakob
Einarsson prófastur á Hofi í Vopnafirði. Hann vígðist þangað
aðstoðarprestur föður síns 1917 og þjónaði prestakallinu jafn-
an upp frá því. Ennfremur hafði hann á hendi aukaþjónustu
í Skeggjastaðaprestakalli árin 1936—1943. Hann var prófastur
Norður-Múlaprófastsdæmis 1929—1959.
Hann hefir verið framúrskarandi áhugasamur og skylduræk-
inn starfsmaður kirkjunnar, vinsæll og velmetinn og prýði
stéttar sinnar.
Frá sama tíma hefir séra Þorvarður Þormar í Laufási feng-
ið lausn. Hann vígðist til Hofteigsprestakalls 4. júlí 1924. Fékk
veitingu fyrir Laufásprestakalli frá fardögum 1928. Aukaþjón-
ustu hafði hann á hendi í Draflastaðasókn 1940—1941 og 1942
—1946.
Séra Þorvarður hefir unnið starf sitt af skyldurækni og sam-
vizkusemi og hlotið almanna viðurkenningu sem valmenni og
prúðmenni.
Enn lætur af prestsskap séra Ingólfur Ástmarsson á Mosfelli
í Grímsnesi. Hann vígðist prestur í Staðarprestakalli í Stein-
grímsfirði 1942. Fékk veitingu fyrir Mosfelli í Grímsnesi 1948.
Hann hlýtur nú annað starf í þjónustu kirkjunnar, biskupsrit-
araembættið. Séra Ingólfur hefir jafnan verið vinsæll og vel
uietinn bæði sem prestur og kennari.
Séra Sveinn Víkingur lætur af biskupsritaraembætti eftir 37
úra starf í þjónustu kirkjunnar. Hann var prestur í Skinna-