Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Side 26

Kirkjuritið - 01.07.1959, Side 26
312 KIRKJURITIÐ Svo er einnig Borgarneskirkja, sem ég vígði á uppstigningar- dag 7. maí. Hún rís hátt á einum fegursta stað kauptúnsins, mikið og vandað hús bæði utan og innan. Er nú liðinn tæpur aldarþriðjungur frá því, er fyrst var vakið máls á því að reisa kirkju í Borgarnesi. Síðan hefir málinu miðað áfram hægt og örugglega, unz marki er náð. Báðum þessum kirkjum hafa verið gefnir margir, ágætir gripir. í síðustu sýnódusskýrslu minni gat ég ýmissa kirkna og kap- ellna, sem væru í smíðum. Fullgerðar eru að kalla en óvígðar enn Dalvíkurkirkja og Skálmarnesmúla, Sólheimakapella og Núpsstaðar. Margar aðrar eru í smíðum og byggingu þeirra komið lengra eða skemmra. Til þeirra teljast þær, er hér segir: Valþjófsstaðarkirkja, Heydala, Bjarnaness, Eyvindarhóla, Há- teigs, Langholts, Kópavogs, Húsafells, Reykhóla, Breiðuvíkur, Hólmavíkur, Efra-Núps, Höskuldsstaða, Hofsóss, Reykjahlíðar og Flateyjar á Skjálfanda. Kvenfélag Garðahrepps vinnur að því með miklum dugnaði undir forystu frú Ástu Björnsson að endurreisa Garðakirkju. Byggingarnefnd Hallgrímskirkju í Reykjavík, skipuð af hlut- aðeigandi söfnuði, bæ og ríki, hefir haldið ýmsa fundi og gjört kostnaðaráætlanir. Virðist það vera einna tiltækilegast, að sam- in verði og sett lög um byggingu Hallgrímskirkju í Reykjavík, þar sem tryggður verði nokkur árlegur styrkur til verksins. En það hlýtur að standa yfir í mörg ár, jafnvel áratugi. Væri ekkert undarlegt né óeðlilegt við það. Ennfremur er rétt að geta þess, að áformað er að reisa sem fyrst kirkju í Hveragerði. Forstjóri elliheimilisins þar og í Reykjavík, Gísli Sigurbjörnsson, er aðalhvatamaður og hefir þegar lagt til ágæta lóð undir kirkjuna. Mikill og fagur klukkuturn hefir verið reistur í kirkjugarð- inum að Görðum á Akranesi. Gjörði sóknarpresturinn, séra Jón Guðjónsson, uppdráttinn. Turn þenna vígði ég að kveldi 11. júlí. Ýmsar kirkjur hafa fengið ágæta aðgerð, svo sem Hvalsnes- kirkja, Bergsstaðakirkja í Svartárdal, Hjalla, Sauðárkróks og Seyðisfjarðar. Byggingu Skálholtskirkju miðar skemmra áleiðis en æski- legt væri. Veldur því einkum, hve mjög hefir dregið úr fjár-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.