Kirkjuritið - 01.07.1959, Síða 35
KIRKJURITIÐ
321
ingafélag íslands gaf félaginu stórgjöf 15000 kr. Æfifélögum
hefir fjölgað um 25, og eru þeir nú orðnir um 100. Ársfélagar
um 800.
Síðasti Biblíudagur var sunudagurinn 1. febrúar. Minntust
prestar þá félagsins í kirkjunum, og námu þá gjafir til þess
alls um 12500 kr.
Félagið selur nú Biblíur í skrautbandi með gyllingu frá
Brezka Biblíufélaginu á 95 kr., og gengur sú sala vel. Enn eru
eftir af þeirri útgáfu í Englandi 1700 eintök, og verða þau
sem fyrst flutt heim til sölu.
I ráði er að láta ljósprenta hina myndskreyttu útgáfu Nýja
testamentisins, smækkaða. Ennfremur er ákveðið að hefja á
þessu ári þýðingu Nýja testamentisins. Þá hefir þess verið far-
ið á leit við dr. Sigurð Nordal prófessor, að hann taki að sér
ásamt forseta Biblíufélagsins að fara yfir þýðingu Gamla testa-
mentisins frá málfræðilegu sjónarmiði og með samanburði við
eldri þýðingar íslenzkar.
Félagið hefir gefið eitt eintak af Nýja testamentinu bundnu
1 öll sjúkraherbergi á sjúkradeildum Elliheimila landsins, alls
um 100 eintök.
Aðalfundur var haldinn 30. apríl.
Starf Æskulýðsnefndar þjóðkirkju nnar.
Sömu prestar sem áður starfa í æskulýðsnefnd undir forystu
séra Braga Friðrikssonar. Hafa sumarbúðir barna verið að
Löngumýri síðastliðið sumar og munu einnig verða með líkum
hætti nú í sumar. Forstöðu veita séra Bragi Friðriksson og
kona hans, frú Katrín Eyjólfsdóttir. Æskulýðsmótin sumarið
1958 þóttu takast vel, og nú verða aftur slík mót á 6 stöðum
á landinu. Eru 4 þeirra þegar haldin: í Vatnaskógi og að Laug-
arvatni 6.—7. þ. m., að Löngumýri og Laugaskóla 13.—14. júní.
En að Núpi í Dýrafirði og Eiðum verða mót 11.—12. júlí að
öllu forfallalausu.
Nefndin vinnur að því að útbreiða sem mest Æskulýðsblaðið,
°g fjölgar kaupendum þess. Það þarf þó að verða betur, því að
allur útgáfukostnaður er nú mjög hár.
Verið er að undirbúa prentun nýrrar söngbókar æskumanna,
°g er verkinu komið nokkuð áleiðis. Valdimar Snævarr sálma-
skáld hefir veitt mikla aðstoð við það.
21