Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Side 38

Kirkjuritið - 01.07.1959, Side 38
Þakkir að skilnaði. 24. júní 1959. Náð Guðs og friður sé með ykkur. Það líður að lokum prestastefnunnar, og ég þakka samver- una á henni og samstarfið. Síðast en ekki sízt þakka ég þær ræður, sem hér hafa verið fluttar af forseta íslands og bisk- upi, og þann heiður og vinsemd, sem forsetahjónin hafa sýnt okkur með því að bjóða okkur hingað heim, svo að við getum slitið prestastefnunni hér. Okkur er það sæmd að mega telja forsetann einn af oss, og ljóst tala verk hans hér um ást hans á kristni og kirkju, og ber þetta hús vitni um frábæra umhyggju hans fyrir því, sam- fara listhneigð hans og listasmekk. Ég hygg það mikla gæfu íslandi, að fyrstu forsetar þess hafa viljað fyrst og fremst eflingu kristindóms með þjóðinni og af alhug getað tekið undir orð Páls postula: „Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið, því að það er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir.“ Vil ég óska þess og biðja, að forsetar okkar á komandi árum verði allir kristnir menn, er hvetji þjóðina til trúar og siðgæðis — göngu á Guðs vegum. Eftirmanni mínum í biskupsembætti vil ég árna heilla og blessunar, guðrækni hans og trúaráhuga hafa nú opnazt víðar og verkmiklar dyr. Ég bið Guð að gefa honum að líta jafnan á kjarna hvers máls og treysta því, sem gott er, í hjörtum mannanna. Það eitt er vænlegt til sigurs í baráttunni fyrir heill og innra frelsi kirkjunnar. Þannig er unnt að eignast hið æðra réttlæti, sem er meginþáttur í boðskap Krists. Ég óska eftir- manni mínum þess, að hann megi hverju sinni sjá glöggt þau spor, sem þarf að stíga á næsta áfanga, og eignist þrótt frá Guði til þess að stíga þau. Ég minnist þess, bróðir, er þú sagðir þegar eftir biskups- kosning þína: „Hver mundi sá, er fær þann hirðisstaf í hend-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.