Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Síða 40

Kirkjuritið - 01.07.1959, Síða 40
326 KIRKJUKITIÐ hætti í fyrirgefningu hans, og láta það ráða framkomu og breytni dag frá degi við aðra menn og allt, sem lifir, biðja þannig og iðja. Áætlanir langt fram í tímann stoða oft lítt. Meira er um það vert að miða starfið við líðandi dag, líkt og Kristur kenndi, er hann mælti: Hverjum degi nægir sín þjáning. Leitazt skal við að vinna hvert verk hins líðandi dags eins vel og fremst er unnt. Svo verður æfistefnan skýrari og ákveðnari en unnt er á nokkurn annan hátt. Þannig eiga allir að stunda prestsstarf sitt, boða fagnaðar- erindi Krists í verki og sannleika. Sú er hugsjónin æðsta. Fyrir 44 árum þennan dag vígðist ég prestsvígslu og valdi mér að texta orð Páls postula: „Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið, því að það er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir.“ Ég var hrifinn af orðunum. Mér fannst það vera dýrlegt hlutverk að boða fagnaðarerindi Krists. Og ég reyndi að lýsa því, hvernig það yrði kraftur Guðs til hjálpræðis. En undir lok ræðunnar greip hugsunin mig með miklum alvöruþunga: Ó, að fagnaðarerindið þurfi aldrei að fyrirverða sig fyrir mig. Ég bað þess þá og bað söfnuðinn í kirkjunni að biðja með mér. Síðan hefi ég oft beðið þeirrar bænar, stundum með orðum 25. Sálms: Til þín hef ég sál mína, Drottinn, Guð minn. Þér treysti ég, lát mig eigi verða til skammar. Hver sá, er á þig vonar, mun eigi heldur verða til skammar. Ég hygg, að engum af oss sé vanþörf að biðja svo, og sú bæn geti orðið oss hin sterkasta hvöt og hjálp til þess að stunda köllun vora, leggja allt fram í þjónustu hennar. Ég hlýt einnig að beina máli mínu til ykkar, beztu vina okk- ar á jörðu, eiginkvenna okkar, sem Guð hefir gefið okkur til þess að standa við hlið okkar, veita okkur hjálp og leiða bless- un yfir líf okkar. Vissulega hefir Guð falið ykkur sömu köll- unina sem okkur og að ýmsu leyti hafið þið rækt hana betur og verið okkur fremri um margt. Prestar íslands hafa verið taldir beztu verðir menningar þjóðar okkar. Prestskonurnar

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.