Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 42

Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 42
Séra Helgi prófastur Konráðsson, Hann átti söguna göfuga sem 111- ugi, en eins og Grettir féll hann ekki fyrr en hann hafði lengi barizt á hnjánum. Fæddur var hann 24. nóv. 1902 á Syðra-Vatni í Lýtingsstaðahreppi. Faðir hans, Konráð bóndi Magnús- son, af Valadals- og Bólstaðarhlíðar- ætt. Móðirin, Ingibjörg Hjálmsdótt- ir, borgfirzk. Það var auðsætt og auðfundið, að hann var borinn og barnfæddur í skauti hinna breiðu, fjallfögru hér- aða, sem ná frá sjó til jökla. Ilmur gróðursins, seigla f jalldrapans, reisn bjarkarinnar, harka steinsins, söngur árinnar, langskyggni víð- áttunnar, seiður tindsins, hreinleiki jökulsins, hlýindi blæsins, — allt var þetta í blóði hans og fasi. Hann bar menninguna með sér, en líka sveitadrenginn í hjarta sér, hvar sem hann fór. Níu ára missti hann föður sinn, og flutti þá með móður sinni vestur í Húnavatnssýslu. Engum auð fyrir að fara, — hann var sonur ekkjunnar, — en fljótt mun hann hafa unnið fyrir sér, vantaði hvorki til þess viljann né hæfnina. Ungur var hann í búð hjá Magnúsi frænda sínum á Flögu, sem verzlaði á Blönduósi. Lipurð hans og ljúfmennska laðaði menn að honum, og hann eignaðist strax marga kunningja. Hann var líka um hríð með föðurbróður sínum, séra Jóni Magnússyni frá Mæli- felli, sem þá bjó í Hamrakoti á Ásum. Sumt mun hafa verið svipað með þeim, t. d. ljúfmennskan, yfirlætisleysið, margbreyti- legar gáfur, en fyrst og fremst sjálfgerð góðvild, — manngöfgi- Séra Jón kenndi honum undir skóla.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.