Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1961, Side 5

Kirkjuritið - 01.11.1961, Side 5
KIRKJURITIÐ 387 legra sambæna. 1 Noregi var stofnaður hinn kristilegi þjóð- flokkur, sem á sérstaklega að berjast fyrir kristilegum ábrif- um á þjóðJífið. Yfirleitt var það ekki talin beppileg leið til sem mestra ábrifa. Atbyglisvert að nú er enginn prestur þing- maður þess flokks, en margir í liinum þingmannahópunum. Vænlegra þess vegna að kirkjunnar menn beiti álirifum sínum eflir megni í öllum flokkum og treysti þar böndin milli ríkis og kirkju. Kirkjan og stórborgin er eitt vandamálið, sem einnig nær nokkuð til vor bér. Meira og f jölbrevtilegra starf er þar kjör- orðið. ViShorfiS til alkirkjunnar var líka víðtækt umræðuefni, sem snerti bæði kenningu og helgisiði. Að fundinum loknum fór biskup í boði embættisbróður síns, Ragnars Askmarks, til Linköping og sat þar prestamót biskupsdæmisins. Var það að mörgu frábrugðið prestastefnu vorri. Helzt a. m. k. á sex ára fresti og er mótað af anda sænska stórveldistímans á 17. öld. Lögð er fram prentuð skýrsla biskups — var að þessu sinni um 200 bls. Gert er þar rækilega grein fyrir hinu kirkjulega ástandi. En ekki er liún til beinnar umræðu. Þá er aðalmál mótsins, sem svo er til stofnað: 1 lok síðasta móts var skipaður „prœses“, er semja skal ritgerð um fyrirlagt efni. Er þar af mörgu að taka. T. d. var ritgerðin á mótinu í Vesterás, sem baldið var fyrr í sumar, um kristindóm og kom- múnisma. En ritgerðin í Linköping var samin af dómkirkju- sýslumanninum (Stólsrúðsmanninum) dr. Ove Hassler og fjall- aði um úrsagnir úr sænsku kirkjunni. Ekkert smáræðisverk, 4—500 bls. Hefur líka vakið allmiklar umræður í sænskum blöðum. Ritgerðir þessar eru gefnar iit nokkru áður en þingið befst svo menn geti hugleitt þær. Einnig skikkaðir andmæl- endur. Er því ekki ólíkt snið á umræðunum og urn doktors- vörn væri að ræða. Enn er flutt annað lært erindi og messugerðir fara fram daglega. Þótti biskupi mikilsvert að kynnast þessu og eiga viðræður við prestana. Enn fór berra Sigurbjörn til Sigtuna. Þar er sem kunnugt er meginmiðstöð kristilegrar fræðslu í Svíþjóð: menntaskóli,

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.