Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1961, Blaðsíða 43

Kirkjuritið - 01.11.1961, Blaðsíða 43
KIRKJURITIÐ 425 {icssu starfi og vill sainbandið þakka öllum, sem þegar liafa lagt því lið' En til þess að þarna geti hafizt öflugt starf fyrir æskuna þarf samstilltan hug niargra. En ÆSK er þess fullviss, að sá skilningur sé fyrir liendi og innan skannns verði þarna kristilegt starf, sem verði niörguin til góðs. Kl. 7 var gert fundarhlé, en um kvöldið var kvikmyndin Alhert Scli- weitzer frumsýnd í Nýja-Bíói, Siglufirði. Var þetta mikil mynd, er sýnir vel lífsferil hins mikla mannvinar og trúhoða, sýnir hvernig hann liefur fórnað sér fyrir þá, er sátu í skugganum. Ljós hefur hann fært þeim, gleði og heilbrigði. Á þessi mynd vissulega erindi til allra nú. Síðar um kvöldið sátu allir fundarmenn rausnarlegt hoð prestshjónanna á Siglufirði, þeirra frú Herdísar Helgadóttur og sr. Ragnars F. Lárurssonar. Var dvalið á hinu myndarlega heimili þeirra fram yfir miðnætti í góðum fagnaði. Höfðu þau á margan hátt hjálpað til þess að fiindurinn mælli takast vel og fundarmönnum líða sem bezt, liýst marga fundarmenn og opnað heimilið með hlýju og rausn. Fundur hófst að nýju sunnudagsmorguninn kl. 10. Sunginn var sálm- ur og sr. Ragnar hafði morgunhænir. Því næst flutti sr. Árni Sigurðsson erindi um æskulýðsstarf innan sænsku kirkjunnar. En hann dvaldi í Svíþjóð s. 1. vetur. og kynnti sér þau mál. Var erindið fróðlegt mjög og skörulegt. Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson sagði frá Æskulýðshlaðinu, en hann er, eins og kunnugt er, ritstjóri þess. Hvatti hann fundarmenn til að sýna hlaðinu meiri ræktarsemi með því að skrifa í það og útbreiða það. Var sr. Sigurði þakkað starf hans við blaðið, en hann er mjög vel ritfær og hef- ur skrifað athyglisverðar greinar í það og fengið ýmsa fleiri til þess líka. Uinræður urðu nokkrar og kom alls staðar fram áliugi að efla það. Ymsar tillögur voru samþykktar, voru þessar lielztar: Aðalfundur ÆSK, haldinn á Siglufirði 2. og 3. sept. 1961, vill eindregið vekja athygli foreldra á þeirri heilögu shyldu í uppeldi harnanna að leiða þau lil kirkjunnar og kenna þeim að taka þátt í hinni almennu guðs- þjónustu. Vill fundurinn í því samhandi minna á hin gullvægu sanniudi orðanna: „Kenn þeim unga þann veg, sem hann á að ganga, og þegar hann eldist mun hann ei víkja þar frá“. (Orðskv. 22, 6). 2. Aðalfundur ÆSK, lialdinn á Siglufirði 2. og 3. sept., skorar á yfir- völd landsins að sjá um, að framfylgt sé lögum og reglum um aldurstak- markanir að almennum dansleikjum og kvikmyndum jafnt í hæjum og í sveitum. Til að mögulegt verði að framfvlgja núgildandi lögum, legg- ur fundurinn til, að öllum innan 21 árs aldurs sé gert að skyldu að hera vegabréf eða aldursskírteini. 3. Aðalfundur ÆSK 1961 telur núverandi ástand í skemmtanalífinu al- gjörlega óviðundandi og harmar þann drykkjuskap unglinga, sem orðinn er á opinherum dansleikjuin. Telur fundurinn hrýna nauðsyn hera lil þess, að þau félagasamlök, sem láta sér annt um æskuna taki höndum suman og studli að heilhrigðum skemmtunum nieðal æskufólks. 4. Aðalfundur ÆSK 1961 leggur til að samhandið Iagfæri liinn forna Gvendarhrunn á Hólum í Hjaltadal og fegri umhverfi lians í samráði við Hólanefnd og þjóðminjavörð. Kýs fundurinn þriggja manna nefnd til forystu í málinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.