Kirkjuritið - 01.11.1961, Blaðsíða 41
KIRKJURITIÐ
423
kosið' lengri og geri ráð fyrir að skáldið eigi eftir að anka
liann, svo margvíslegum áhrifum, sem það varð fyrir í Jór-
salaförinni. Við farinn veg er síðasti þátturinn og sá mesti.
Síðasta kvæðið nefnist Kvöldsýn í morgunljósi. — Þetta
er uppliafserindi þess:
Legg aldrei lag við morgunlirædda menn,
jjví morgungleði Jiín og aftanró
sé sú að finna fölskvalaust í lijarta
fögnuð og trúnað gagnvarl Jjví, sem verður
borið' í þinna barna eigin höndum
sem brolhætt gull í starfs og lífsins dag.
AlJjjóð veit hve séra Sigurð'ur í Holti er margfróður og orð-
snjall og verður því Jjessari kveðju hans eflaust vel tekið. Ég
sakna þess að' aðeins einn sálmur er í bókinni: FJin er trú.
Vona að fleiri fylgi næst.
SÁGA UÁSKÚLA ISLANDS, eftir Guðna Jóns■
son. —- Utgefandi: Háskóli Islands, 1961.
Háskólinn liefnr alltaf verið' ástsæll meðal þjóðarinnar.
Stofnun hans var einu merkasti áfanginn í sjálfstæðisbarátt-
unni. Og frá upphafi hefur hann revnzt vanda sínum vaxinn,
að veita nemendum sínum engu síðri fræðslu en J)eir hefðu
sótt út fyrir pollinn í sömu greinum. Við bann liafa líka
jafnan starfað margir afburðamenn.
Við samanburð á gamla prestaskólanum og guð'fræðideild-
inni sézt glöggt hvað' áunnist hefur við það, að’ háskólinn
komst á laggirnar og jafnframt að’ liann er enn í stöðugum
vexti á öllum svið'um. Bók dr. Guðna Jónssonar er greinargott
yfirlit yfir hálfrar aldar sögu, ljóst og fróðlegt, prýtt fjölda
mynda af háskólabyggingunum og mörgum prófessorum. Og
útgefið af smekkvísi og vandvirkni.
G. Á.