Kirkjuritið - 01.11.1961, Side 22
404
KIRKJURITIÐ
sér far um að láta alla njóta sannmælis og ræðir af miklum
skilningi um Jiann klofning, sem varð í Kirkjufélaginu snemma
á öldinni. Orð hans bera ljóst vitni um víðsýni og „umburðar-
lyndastefnuf estu“.
★
Árin 1925—1930 var.séra Kristinn prestur íslenzku safnað-
anna í Argyle-byggð í Manitoba. Er til svofelld lýsing eins
sóknarbarnanna þar á prestsskap bans: „Hann hefur lagt rækt
við bina praktisku blið lífsins og hefur glöggan skilning á því,
bve náinn skyldleiki er með því andlega og veraldlega, eða
hversdagslega. Hann liefur mikið kynnt sér endurbótastefnur
samtíðarinnar og sér máske betur en margir sérfræðingar í
]>eim efnum, livar ræturnar liggja, sem mannlegu böli valda,
og mun skoðun lians vera sú, að kirkjan eigi og sé skyldug til
þess að beita sínum ábrifum til að uppræta spillingarræturnar,
sem eitra mannfélagslíkamann . . . starfa með beilbrigðum
anda og á skynsamlegum grundvelli“.
Á þessum árum tók bann sér ekki aðeins langferð á liendur
til Alþjóðaþings lútersku kirkjunnar, lieldur einnig lieim til
íslands og varð mjög hrifinn af íslenzkri sveitamenningu. Taldi
bann ferðalag til Islands taka öllu ferðalagi fram fyrir þá, sem
af íslenzku bergi væru brotnir. Hann ferðaðist um meðal ls-
lendinga og flutti fyrir þá erindi um Island. Hann vildi varð-
veita íslenzka menningararfinn og veita lionum inn í þjóðh'fið
unga í Vesturlieimi. Var starf lians að þjóðræknismálum mikið
og merkilegt, fyrr og síðar.
Haustið 1930 tók séra Kristinn köllun frá Hallgrímssöfnuði
í Seattle í Bandaríkjunum vestur á Kyrrabafsströnd. Þjónaði
bann þeim söfnuði í 12 ár og kenndi jafnframt um skeið í
prestaskóla, svo sem áður var drepið á. Einnig tók liann þar
mikinn þátt í alls konar kirkjulegu og menningarlegu félags-
starfi. Eftir þetta dvaldist liann áfram í Bandaríkjunum til
æviloka. Hann tókst á bendur 1942 ábyrgðarstarf fvrir ríkis-
stjórn Bandaríkjanna á stríðsárunum og settist þá að t
Chicago, en prédikaði þó jafnframt og vann ýms prestsverk
öðrum þræði. Tveimur árum síðar varð bann prestur safnaðar
Sameinuðu lútersku kirkjunnar í bænum Mt. Carroll i
lllinois og tók sæti í framkvæmdastjórn lllinoissynodunnar.