Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1961, Side 27

Kirkjuritið - 01.11.1961, Side 27
KIRKJURITIÐ 409 sé hátíðastenmingin, sem hér laði að. Og þar sem kommúnistar, — í nafni framfaranna, — telja sig gjöra almenningi greiða með því að venja hann af að lilusta á boðskap kirkjunnar, þá álíta þeir aftur á móti liagkvæmt að varðveita svo mikið af ytri formum hátíðleikans, sem unnt er, — alveg greinilega að kirkjulegri fyrirmynd. Þess vegna er í hinum ungversku leið- beiningum um framkvæmd socialistiskra hátíðaatliafna lögð áherzla á, að séð sé fyrir viðhafnarmiklum formum og liátíð- legum. Þannig er t. d. mælt með blómaskreytingum og org- anleik. Það er svo aftur athyglisvert, að þessar tilraunir til að veita uppbætur fyrir kristnar hugsanir og siði leiða á sinn liátt til mjög svo borgaralegrar siðvæðingar, eins og t. d. gjörist, þegar í stað hinna 10 boðorða Móse eru sett önnur 10 lieimatilbúin kommúnistisk boðorð. Austur-þýzki flokksleiðtoginn, Ulbriclit, hefur fyrir löngu gjört sína eigin útgáfu af boðorðunum tíu, og í Ungverjalandi liafa menn ekki viljað standa lionum að baki. Flokksmálgagnið „Nepszabadsag“ birti svohljóðandi úl- gáfu: 1. Þú skalt ekki liafa í frammi vinnusvik. 2. Þú skalt ekki hafa vélar ríkisins til einkanota. 3. Þú skalt ekki taka þátt í baktjaldamakki. 4. Þú skalt ekki stuðla að því, að félagar þínir missi vinnu sína. 5. Þú skalt taka gagnrýni með gleði. 6. Þú skalt ekki leyna aukaskildingum fvrir konu þinni. 7. Þú skalt ekki girnast starf náunga þíns. 8. Þú skalt ekki öfunda þá, sem eru sendir utan, til þess að vinna störf erlendis. 9. Þú skalt elska yfirmann þinn eins og sjálfan þig. 10. Þú skalt heiðra yfirhoðara þinn, að þú megir lengi vera í hans þjónustu. „Hin tíu boðorð socialistiks siðgæðis“, sem Ulbriclit liefur samið, eru svo aftur miklu róttækari með hvatningum sínum til að ala börnin upp í anda socialismans, enda þótt í hinni austur-þýzku útgáfu gæti einnig smáborgaralegra siðgæðis- sjónarmiða, eins og í þessu „boðorði“: Þú skalt lifa hófsömu og sómasamlegu lífi og virða fjölskyldu þína). En markmiðið er liið sama í Ungverjalandi sem í Austur-Þýzkalandi: 1 stað

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.