Kirkjuritið - 01.11.1961, Page 42
INNLENDAR
F R É T T I R
Samband Æslculý'ösfélaga kirkjunnar í Hólastifti hélt aðalfund á Siglu-
firði 2. og 3. sept. s. 1. Fundinn sátu 9 prestar af félagssvæðinu, 15 unglingar,
fulltrúar æskulýðsfélaganna, æskulýðsfulltrúi Þjóðkirkjunnar sr. Ólafur
Skúlason og nokkrir gestir, þar á meðal þrír amerískir unglingar, full-
trúar frá ungmcnnasamtökum kirkjunnar í Bandaríkjuuum, en þeir dvelja
hér árlangt á íslenzkum heimiluin á vegum kirkjunnar, eins og kunnugt er.
Fundurinn hófst með því að sunginn var sálmur, en síðan flutti sr.
llagnar F. Lárusson, sóknarprestur á Siglufirði, stutla hugleiðingu. Síðau
setti formaður sambandsins, sr. Pétur Sigurgeirsson, fundinn og flutti
ávarp og skýrslu stjórnarinnar. Minntist liann tveggja manna nýlátinna,
sem mikið hafa starfað að cflingu kristilegs starfs um langan aldur, þeirra
sr. Friðriks Friðrikssonar og Yaldemars V. Snævars. Vottuðu fundarmenn
minningu þeirra virðingu og þökk með því að rísa úr sætuin.
Rakti formaður síðan störf stjórnarinnar. Minntist liann æskulýðsdags-
ins, sem liann taldi hafa gefið góða raun. Greindi hann frá fermingarharna-
mótunum á Laugum í Reykjadal og á Sauðárkróki, einnig sumarmóti á
Löngumýri. Tvö æskulýðsfélög hafa verið stofnuð á slarfsárinu. Æskulýðs-
félag Sauðárkrókskirkju og Æskulýðsfélag Einarsstaðakirkju í Grenjað-
arstaðaprestakalli. Að lokum gat liann þess, að samhandið hefði fest katip
á kvikmynd uin líf og starf Alherts Schweitzers, og yrði myndin frumsýnd
í samhandi við fundinn, en síðan sýnd víða um land til ágóða fyrir sumar-
húðastarfið.
Sr. Ólafur Skúlason ávarpaði fundinn og flutti fundinum kveðjur hiskups,
fyrrverandi biskups og formauns æskulýðsnefndar. Rakti æskulýðsfulltrúinn
helztu liði æskulýðsstarfsins og lagði álicr7,lu á þýðingu þeirra. Var góður
rómur gerður að ræðu sr. Ólafs og fögnuðu allir því að liann gat setið
fundinn og sagt frá reynslu sinni og gefið góð ráð.
Því næst var rætt uin næslu verkefni samhandsins og ýmsar tillögur
komu fram, er nefndir fengu til íhugunar
Skýrt var frá því, að æskulýðsfulltrúi inyndi koma á foringjanámskeiði
í haust og var lagt til að hvert félag reyndi að senda einn fulltrúa á slíkt
námskeið.
Þá flutti sr. Sigurður Guðmundsson erindi um sumarhúðir og sagði frá
því hve langt væri komið undirhúningi sumarhúða við Vestmannsvatn í
Aðaldal. Land er fengið og lagður hefur verið vegur á staðinn. Og allar
líkur hcuda lil þess að hægt verði að liefja byggingaframkvæmdir á næsta
vori. Var mikið rætt um þetta mál og almennur áliugi kom frain um að
reyna að fá vinnubúðaflokk næsta suiiiar til að vinna að hyggingu stað-
arins. Allsstaðar þar sem leitað hefur verið eftir stuðningi við þetta mál,
hafa undirtektir verið á einn veg. Allir vilja greiða fyrir því eftir heztu
getu. Landeigeiidur hafa sýnt mikla rausn og velvilja, en laiid þetta er úr
Fagranessbæjuin í Aðaldal. Allt slíkt er til þess að örfa og glæða áhuga á