Kirkjuritið - 01.07.1962, Qupperneq 6
292
KIRKJURITIÐ
brigðrar kirkju séu öll eðlileg í liennar augum. Þetta megum
vér gera oss ljóst, enda var það einatt áþreifanlegt bæði fyrr
og síðar. En þessar staðreyndir eru mál út af fyrir sig. Það,
sem ég var að segja, er liitt, að prestar deila kjörum með öðru
nýtu og starfandi fólki að því leyti, að dagleg iðja liefur liljótt
um sig og telst yfirleitt ekki til sögulegra afbrigða út á við. Og
þó er hliðstæðan ekki alger. Hún hrekkur raunar skammt.
Það, sem gerist í því, sem við ber, þegar presturinn vinnur,
er í leyndum. Ekki aðeins það, sem gerist, þegar liann „geng-
ur inn í herbergi sitt og biður föðurinn, sem er í leyndum“ og
opnar liuga simi fyrir orði lians, þegar liann m.ö.o. í einrúmi
tengir og treystir þann hulda lífsþráð, sem ber allt uppi, sem
bann er og megnar. Það er líka margt á dagskrá lians, sem er
sýnilegt og meira að segja mjög svo jarðneskt. En þegar prest-
ur sinnir sínum margvíslegu verkefnum, er það maðurinn, sein
liann er að sinna, mannlegur vandi, stór eða smár, sem þarf
að leysa eða greiða, mannleg sál, sem í hlut á, sem Jesús Krist-
ur vill snerta, bjálpa og blessa og gefa ríki sitt. Og Guðs ríki
kemur ekki svo að á því beri. „Hver er sem veit, nær daggii'
drjúpa, livar dafnar fræ. . . . ?“ Ég spurði um sporin á starfs-
ferli liðins árs. Var ekki blær himinsins yfir þér á einhverri
stundu, sem kom í liljóði og leið lijá eins og aðrar tímans
stundir, en skilur eftir eilíft blik í leyndum? Féll ekki orð
af vörum þínum, sem gerði bjart í dimmum ranni eða rökkv-
uðum buga? Var þér ekki gefið að mæla það við barn, sem
búa mun um sig í sálu þess og verða hulin lífsfrjóvgun til
æviloka? Áttirðu ekki stund með söfnuði þínum í belgidóini,
sem lióf ykkur öll hátt yfir duftið, grómið og liismið? Var
ekki bið kyrrláta líf kirkjunnar á Islandi um liðið og liðin
ár í líkingu við súrefnið í andrúmsloftinu, sem menn muna
ekki eftir sakir þess að það lætur svo lítið yfir sér, og taka
ekki verulega eftir fyrr en eitthvað það kemur fvrir, sem
minnir á, að það er lífsnauðsyn, má ekki þverra, má ekki,
bverfa, því að þá kemur dauðinn?
Vér felum Guði gengin spor, biðjum bann að bæta það allt,
sem brast á eða brást hjá oss, biðjum bann, að blessa allt, sein
liann getur kannast við sem sitt verk. Gefi liann oss öllum
nýjan „styrk í kærleik, kraft í trú“.