Kirkjuritið - 01.07.1962, Blaðsíða 26

Kirkjuritið - 01.07.1962, Blaðsíða 26
312 KIRKJURITIÐ allra mála með nýjum hætti, skoSun liennar á hjúskap ofí heimilishaldi önnur en áður. Konan er hætt að vera manni sínum „undirgefin“ hvort heldur að lögum eða venjum. Hún er lionum jafnrétthá að lögum og liefur sýnt og sannað að hún er honum jafnvíg á svo að kalla Iivaða sviði sem er. Þess vegna haslar hún sér ekki lengur völl innan vébanda heimilisins eins og fvrr, en sækir stöðugt út á við og ryður sér æ meira til rúms á opinberum vettvangi og í sí fleiri stöð- um. Stundirnar sem hún getur helgað heimilinu vcrða að sjálfsögðu þeim mun færri og Iiugurinn afvensl því að snú- ast mest um börnin, þótt þau séu eitt eða fleiri fyrir hendi. Fyrst offjölgun mannkynsins er af fróðum mönnum talin einna ískyggilegasti liáskinn, sem vofir yfir veröldinni, er ekki um það að sakast þótt flestar konur æski nú eftir að eiga scm fæst börn. Takmörkun barneigna getur í mörgum tilvikum verið nauðsynleg, en miklu máli skiptir livernig henni er bagað. Ólöglegar fóstureyðingar bafa oft óbætanlegt tjón á líkama og sál í för með sér. Fjöldi óskilgetinna barna vex mörgum í augum. Hitt er samt enn athyglisverðara pg ískyggilegra hversu mörg ung lijón virðast telja það úrelt, að þau liafi hundist ævilöngum tryggðum með því að ganga í hjónaband. Hjónaskilnaðir eru daglegir viðburðir og orsakir ]>eirra bæði smáar og stórar. Það er alveg „úr móð“ að finnast það ljóður á nokkrum, að liann (eða hún) sé margskilinn og marggiftur. Undarlegast samt bversu hörnin virðast skipta marga foreldra litlu máli, þegar kemur til skilnaðar. Fjöldi feðra láta þau öll greiðlega af hendi við móðurina. Og sumar mæður vinna til að koma þeim í fóstur eða gefa þau, heldur en lialda beimilinu lengur uppi. Þá kemur það atriðið, sem sunium dylst enn um of, en krefst þegar nýrra úrræða. Ófáum konum, sem stunda úti- vinnu eða gegna tímafreku samkvæmislífi, finnast börnin vera sér ósjaldan til of mikils trafala og jafnvel nokkur fjöt- ur um fót. Hafi þær unnið utan lieimilis árum saman áður en þær giftust, þykir þeim, bæði af vana og vegna fjárhags- ástæðna, skemmtilegra og bagkvæmara að geta haldið þeim störfum áfram. Telja að börnin eigi ekki að sitja svo í fyrir- rúmi að þau bægi þeim frá því. Reyna þess vegna að fá ungl- inga til að líta eftir þeim, meðan þau eru á fyrstu barusárun-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.