Kirkjuritið - 01.07.1962, Blaðsíða 15

Kirkjuritið - 01.07.1962, Blaðsíða 15
KIRKJURITIÐ 301 um lífiS í nútímaverksmiðju. Það kann að vera rétt, og ekki gott, ef rétt væri. En stundum getur manni dottið í liug, að menn séu minnugri eða fundvísari á dökkar myndir eða af- skræmi frá löngu liðnum öldum en á stóra og gleðilega við- burði, sein eru að gerast í sögu kristninnar í vorri eigin samtíð. Vér erum kallaðir til þess að bera birtu, flytja gleðilegan boðskap, vera samverkamenn að gleði liins kristna, jarðneska og eilífa, samfélags í trúnni og voninni og kærleikanum. Þess vegna skulum vér reyna að fylgjast með því og benda á það, sem getur glatt, uppörvað, lyft og styrkt. Söfnuðirnir á íslandi eiga rétt á því og þurfa á því að balda. Þótttaka kirkju vorrar Þátttaka íslenzku kirkjunnar í alþjóðlegu, kristnu samstarfi er ekki fyrirferðarmikil, en hún er raunbæf það sem bún nær. Vér böfum undanfarin ár baft virk samskipti við æskulýðsdeild Alkirkjuráðsins og einstakar erlendar kirkjur á sviði æsku- lýðsmála, bér liafa verið starfræktar vinnubúðir, þar sem bóp- ar ungmenna, innlendra og erlendra frá ýmsum kirkjudeildum, bafa unnið saman og uppbyggt sig saman í sameiginlegri trú. Þá liafa og farið fram skipti á ungmennum, ungt fólk héðan befur dvalizt erlendis árlangt sem gestir kristinna safnaða og í staðinn liefur þjóðkirkja Islands útvegað vist liér fyrir ung- linga vestan um liaf. Þessi viðleitni bvor tveggja miðar að gagnkvæmum, raunverulegum kynnum og skilningi, ekki að- eins þjóða í milli, beldur og milli kirkna með ólíkar venjur og mismunandi sjónarmið. Ný lög, sem kirkjuna varða Tvennar lagabreytingar, er kirkjuna varða, voru gerðar á síðasta Alþingi. Lögfest var einnar milljón króna framlag í Kirkjubyggingarsjóð til næstu 20 ára og úthlutunarreglum breytt til samræmis við þessa liækkun á framlaginu. Þetta var l>akkarverð umbót og í samræmi við ítrekaðar og rökstuddar óskir. Þá var gerð sú breyting á lögunum um skipun presta- kalla, að kirkjustjórn var heimilað að flytja til prestssetur, «að fengnum tillögum sóknarnefnda prestakallsins og með ráði héraðsprófasts og sóknarprests“. Tel ég bót að þessari breyt- ingu. Með lögunum um skipun prestakalla frá 1952 voru prests-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.