Kirkjuritið - 01.07.1962, Blaðsíða 7

Kirkjuritið - 01.07.1962, Blaðsíða 7
KIRKJURITIÐ 293 „Það er aðeins eitt, sem er sorglegtu, segir Leon Bloy, „og þaS er að' vera ekki lielgur maður“. Guð gefi oss íslenzkum prestum meira af hamingju þeirrar sorgar. Þeir, sem horfnir eru Þá vil ég svipast um. Og eins og venja er til, vil ég fyrst minnast þeirra, sem eru liorfnir sýnum. Einn þjónandi prestur hefur látizt á liðnu synodusári, síra Lárus Arnórsson, prestur að Miklabæ. Hann varð hráðkvaddur á ferðalagi 5. apríl s. 1. Sr. Lárus var tæpra 67 ára að aldri, E 29. apríl 1895 að Hesti í Borgarfirði, sonur sr. Arnórs Þor- lákssonar og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur. Hann lauk stúd- entsprófi 1915, embættisprófi í guðfræði 1919, vígðist sama ár aðstoðarprestur að Miklabæ í Skagafjarðarprófastsdæmi, fékk tveimur árum síðar veitingu fyrir því prestakalli og þjón- aði því til dauðadags, alls 43 ár. Hann kvæntist 1923 Guðrúnu Björnsdóttur prests að Miklabæ Jónssonar og lifir lmn mann S1nn ásamt 4 sonum þeirra. Tveir svnir sr. Lárusar eru þjónandi prestar. Það mun einmælt meðal stéttarhræðra, að með sr. Lárusi á Miklabæ sé genginn einn sá maður, sem ekki líður úr minni. Mun oss öllum þykja sjónarsviptir að lionum úr hópnum, þvi að sjaldan lét liann sig vanta á prestastefnu og engum öðrum Var hann líkur. Hann var óspar á að leggja til mála, kvikur °g ör í viðbrögðum, glettinn stundum og orðskár og engan veginn ófús að leika þá list mælskunnar, sem var einn liinna ri"ku þátta í fjölbreyttu og auðugu gáfnafari. Sjaldan brást Eann um það að láta einhver leiftur snjallra liugmynda, sam- líkinga og hnvttiyrða ganga um salinn. Ræðumann í kirkju •'vgg ég hann liafa verið einn hinn tilþrifamesta, þegar bann naut sín bezt. Yfir svip lians og fasi var alltaf eitthvað ungt, ekki ráðið, a. m. k. án slíks jafnvægis, sem fylgir stöðn- 1,11 • Blikið í augum lians, þegar hann var lirifinn og þar með 8annastur, var ógleymanlega bjart og tært. Miklibær er minni eftir fráfall hans, Skagafjörður fagri snauðari, yfirbragð stétt- ar vorrar fáskrúðugra. Blessuð sé minning lians. Vér rísum úr ssetum og vottum honum virðingu og þökk. ^ árinu liafa eftirtaldar prestskonur látizt:

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.