Kirkjuritið - 01.07.1962, Blaðsíða 10
296
KIRKJURITIÐ
ASrar breytingar
Allmörg em prestaköllin enn, sem aðeins Iiafa þjónustu ná-
grannapresta og má telja lieildaraðstæður í því efni lítt breytt-
ar frá því í fyrra. Breytingar á prestsþjónustu, auk þeirra,
sem þegar er getið, eru þessar:
Sr. Jón Bjarman var skipaður sóknarprestur í Laufáspresta-
kalli í S.-Þing. frá 1. jnlí að telja, að uiulan genginni lögmætri
kosningu. Hafði liann áður gegnt prestsþjónustu lijá hinu
lútherska kirkjufélagi Islendinga í Vesturheimi um þriggja
ára skeið. Er vel, að hann er nú lieim kominn og að starfi hér.
Veri hann velkominn.
Sr. Eiríkur J. Eiríksson, þjóðgarðsvörður, sem verið liefur
settur prestur í Þingvallaprestakalli, Árn., hefur nú verið skip-
aður sóknarprestur þar, að undan genginni lögmætri kosningu.
Einn prófastur var skipaður, sr. Þórarinn Þór á Reykliólum,
skipaður prófastur í Barðastrandarprófastsdæmi frá 1. okt.
Þrír prófastar voru settir, í N.-Múlaprófastsdæmi sr. Erlendur
Sigmundsson, í S.-Múlaprófastsdæmi sr. Trausti Pétursson, í
Mýraprófastsdæmi sr. Leó Júlíusson.
Lausn fró embœtti
Lausn frá embætti liafa fengið: sr. Kári Valsson, er verið
hafði prestur í Hrafnseyrarprestakalli frá 1954. Hann er f. 17.
júlí 1911, vígðist að afloknu guðfræðiprófi frá Háskóla ís-
lands 21. júní 1954. Hann liefur jafnframt prestsskapnum ver-
ið barnakennari í Hrafnseyrarprestakalli, en það er kennslu-
prestakall. Hann beiddist lausnar frá 1. sept. og var þá jafn-
framt skipaður skólastjóri við heimavistarbarnaskólann að
Strönd á Rangárvöllum. Ég færi honum þakkir fyrir störfin
í prestsstöðu undanfarin ár og bið Iionum góðra heilla í því
starfi, sem liann hefur nú tekizt á hendur.
Frá 1. sept. n. k. liefur prófasturinn á Húsavík, sr. Friðrik
A. FriSriksson, beðizt lausnar frá embætti. Hefur lausnin ver-
ið veitt og embættið auglýst til umsóknar. Sr. Friðrik er f. 17.
júní 1896 og því 66 ára að aldri. Hann vígðist til prestsþjón-
ustu hjá íslenzkum söfnuðum í Kanada 1921 og hefur þannig
verið prestur í 41 ár. Hann var skipaður sóknarprestur á Húsa-
vík 1936 og prófastur í S.-Þingeyjarprófastsdæini þremur ár-
um síðar. Rek ég ekki fjölþætt störf hans frekar hér, en víst