Kirkjuritið - 01.07.1962, Side 12
298
XIRKJURITIÐ
Visitasia biskups og utanför
Tvö prófastsdæmi visiteraði ég, Rangárvalla- og Árnesspró-
fastsdæmi, að tveimur sóknum frátöldum í Árnesprófastsdæmi,
sem urðu útundan af óviðráðanlegum orsökum. Alls voru þetta
yfir 40 sóknir, sem ég heimsótti, og auk þess 5 stofnanir í Ár-
nessýslu, skólar og hæli, þar sem ég prédikaði eða flutti erindi.
Prestum og öðrum, sem greiddu för mína og gerðu liana
ánægjulega, vil ég flytja þakkir við þetta tækifæri.
Kg sótti hiskupafund Norðurlanda, sem haldinn var í
Larkkulla á Finnlandi 24.-28. ágúst. Hef ég annars staðar
skýrt nokkuð frá þessum fundi og öðrum fundum, sem ég sat
í þessari utanför, en hún stóð yfir í tæpar 3 vikur.
Útgófustarf
1 kirkjulegri útgáfustarfsemi gerðist fátt nýjunga. Hin sömu
hlöð og tímarit komu vit sem áður, Kirkjuritið á vegum Presta-
félags Islands, Æskulýðsblaðið á vegum æskulýðsnefndar kirkj-
unnar, bæði þessi rit eru styrkt af Kirkjuráði — Bjarmi, Kristi-
legl vikuhlað, alhnörg safnaðarhlöð. Bók kom lit um Hrafns-
eyrarstað eftir sr. Böðvar Bjarnason. Sr. Sigurður Einarsson gaf
út enn nýja Ijóðabók. Sr. Sigurður Pálsson gaf út Messubók,
sem liann liefur lengi unnið að. Liggur mikil vinna og þekking
að baki þessa verks og má ætla, að prestar og aðrir starfandi
menn kirkjunnar kynni sér bókina ýtarlega. Vil ég taka það
frani hér, að ég veiti heimild til þess að nota þessa bók í opin-
berri þjónustu sem lillögu og í tilrauna skyni.
Fundir o. fl.
Almennur kirkjufundur var haldinn í Reykjavík í október.
Voru þar merk mál á dagskrá og ályktanir gerðar í mikilvæg-
um efnum.
Kirkjuvikur voru á nokkrum stöðum, ýrnsir fundir og mót
kristilegra félaga og samtaka.
Kirkjuþingið í Nýju Delhi
Á alþjóðaþingi kirkjunnar í Nýju Dellii á Indlandi, sem
haldið var seint á liðnu ári, gat íslenzka kirkjan ekki átt neinn
fulltrúa, en það þing var án efa mesti kirkjuviðburður ársins,
þegar miðað er við hinn stóra lieim. Gerðir þingsins eru enn