Kirkjuritið - 01.07.1962, Síða 33
KlRKJUIllTie
319
Uimið er að því að búa drengina undir nýta þátttöku í þjóð-
lífinu og sinna þeir ýmsum störfum, leikjum og námi. Alls
^iafa dvalizt þar 57 drengir og af þeim er aðeins vitað um 4,
sem aftur liafa gerzt brotlegir við lögin.
Þá má nefna Barnaverndarfélög, sem starfa víða um land
að ýmsum barnaverndarmálum.
Einn aðili enn er svo Hjálparnefnd stúlkna, sem starfar að
því að útvega vist á uppeldisbeimilum í Danmörku fyrir ung-
ar stúlkur, sem sérlega þurfa þess með. Alls bafa 11 stúlkur
verið sendar og hefur árangur oftar orðið góður en slæinur,
°ft mjög góður. Nefndin befur nú lieimild til að ráðstafa í 5
l'láss á uppeldislieimilum í Danmörku.
Loks er það svo kvenlögreglan, sem reyndar starfar bæði
að unglingamálum og fyrir áfengissjúklinga. Hún starfar fyrir
kvenfólk á öllum aldri, liefur t. d. afskipti af telpum, sem
fremja þjófnaði, stúlkum, sem stunda iðjuleysi og illa hegð-
un, koma illa fram á heimilum sínum, stunda útivist, laus-
læti og drykkjuskap eða bvern annan ósóma. Hún hefur einn-
'S afskipti af drykkjusjúkum konum á ýmsum aldri og reynd-
ar er leitað til kvenlögreglunnar með margvísleg mál, sem
ekkert koma lögbrotum við. Tvær konur starfa nú lijá kven-
lögreglunni.
Að lokum kynnumst við þeim, sem starfa að fangalijálp.
Lað er fangabjálpin, sem starfað hefur í 13 ár á vegum Oscars
f-lausen. Er það margvísleg aðstoð við sakamenn og er leitast
við að forða þeim, sem smáafbrot fremja, frá því að lenda á
Litla-Hrauni, enda er fangavist alltaf neyðarúrræði og hefur
8jaldan bætandi ábrif á fangana.
Annar aðili er Vernd. Er þar einnig unnið að margvíslegri
aðstoð við dæmda menn. Fylgst er með þeim meðan á fang-
elsisvistinni stendur og beimili þeirra aðstoðuð ef þurfa þykir.
Vernd rekur lieimili að Stýrimannastíg 9 í Revkjavík og eiga
mennirnir þar atbvarf eftir að dómsúttekt lýkur. Oft, e. t. v.
°ftast er það ofnotkun áfengis, sem veldur afbrotaferli ]>ess-
arra manna.
Af þessarri upptalningu verður séð, að því fer fjarri að
ekkert sé gert. Það liggur jafnvel við að við verðum stolt af
bví bvað vel þessum málum er borgið bjá okkur. Það getum
yið samt engan veginn, því miður. Flest þessi störf eru unn-