Kirkjuritið - 01.07.1962, Qupperneq 43
KIRKJURITIÐ
329
Að afstöðnum sérþingum þessara kirkjufélaga gengu allir
undir eitt þak til sameiginlegrar guðsþjónustu, á fimmtu-
dagsmorguninn 28. júní, kl. 10 f. li. Var talið, að um 7000
vseri þar viðstaddir, og rúmlega 5000 gengu til altaris. Við
þá atliöfn þjónuðu 40 prestar, flestir þeirra kirkjufélaga- og
umdæmisforsetar. Prédikun flutti Dr. Bersell, fyrrum forseti
Ágústana synodunnar. Lagði hann út af Efesusbréfinu 4:4-6,
°g hafði að umræðuefni einkunnarorð þingsins: „Einn Drott-
inn — ein trú“.
í*essi guðsþjónusta, sem var fæðingarathöfn liinnar nýju
kirkju, sem nú ber nafnið Lútherska kirkjan í Ameríku, var
mJÖg hátíðleg, og svo vel skipulögð, að þrátt fyrir liinn mikla
fjölda altarisgesta, var hún afstaðin eftir rúmlega tvær klukku-
stundir.
Söguleg sýning fór fram áður en guðsþjónustan liófst Voru
þar sýndir þættir úr útflutnings- og frumhyggjasögu liinna
ynisu þjóðflokka, sem mynda þessar kirkjudeildir. Stór söng-
flokkur var þar, sem söng ýmis þjóðlög af þýzkum, sænskum,
dönskum og finnskum uppruna. Lauk sýningunni með því að
songflokkurinn söng ljóðaflokk, sem endaði með þessum
orðum:
„Það er ekki formið eitt sem tengir oss — ekki er það
beldur skjal sem vér skrifum undir. Ekki er það lieldur sam-
eiginlegur söngur eða Iieitstrenging. Það sem sameinar oss er
bann, gem leiðir oss; liann sein leitar vor; liann sem varð
niaður til að sýna oss veginn til föðurins; liann sem vill að
ver beygjum oss hljóðir undir það, sem skynsemi vor megnar
ebki að greina, í viðurkenning þess regin sannleika að lífið
abt, og örlög manna, er og verður ávallt leyndardómur Guðs
seni gaf son sinn í dauðann til þess að vér mættum lifa, lians
sem vill að vér verður eitt, eins og hann er einn“.
Má segja, að þetta væri grunntónninn í margra ára undir-
búningi fyrir J)ing Jietta, og svo í öllum umræðum og ákvörð-
nnum á þinginu sjálfu.
Umræðuefni á þingfundum fjallaði að mestu um skipulag
uinan hinnar nýju kirkju. Verður benni skipt í 30 kirkjufélög
eða synodur, sem liafa livert um sig ákveðið starfssvæði til
ninsjonar. Þrjár Jjessara deilda verða í Kanada og nefnast
Áustur-Kanada, Mið-Kanada og Vestur-Kanada deildir lút-