Kirkjuritið - 01.07.1962, Qupperneq 48
Si'ra Jón ÞorvarSarson:
Aðalfundur Prestafélags íslands
Aðalfundur Prestafélags Islands var halriinn á Þingvollum
20. júní.
Var fyrst gengið' í Þingvallakirkju til guðsþjónustn. Séra
Eiríkur Eiríksson prédikaði.
Fundurinn var lialdinn í Valhöll og settur af formanni félags-
ins séra Jakobi Jónssyni. I upphafi fundarins lagði liann fram
fjölritaða skýrslu um störf félagsins á síðasta starfsári og gerði
grein fyrir fjárhag félagsins og tillögiun stjórnarinnar.
Þá flutti séra Jónas Gíslason í Vík erindi um kirkjur og
prestakallaskipun fyrr og nú m. fl.
Á fundinum var mættur biskup íslands, Sigurbjörn Einars-
son; ennfremur Westergárd-Madsen, biskup í Kaupmannaliöfn.
Ávarpaði liann fundarmenn nokkrum orðum og liar fram
árnaðaróskir.
Allmiklar umræður urðu um launamál prestastéttarinnar
vegna kjarasamninga opinberra starfsmanna, samkv. lögum
frá síðasta alþingi. Þá var og nokkuð rætt um liugsanlegar
greiðslur fyrir aukaverk presta, útgáfu Kirkjuritsins m. fl.
Úr stjórn áttu að ganga: Sr. Jakob Jónsson, sr. Gunnar Árna-
son og sr. Sigurjón Guðjónsson. Voru þeir allir endurkjörnir.
Aðrir í stjórninni eru: Sr. Jón Þorvarðarson og sr. Sigurjón
Árnason.
Varamenn vom kjörnir: Sr. Bjarni Sigurðsson og sr. Magnús
Guðjónsson.
Um kvöldið var sameiginlegt borðhald fundarmanna og
þátttakenda á aðalfundi prestkvennafélagsins, en sá fundur
var einnig baldinn á Þingvöllum þennan dag.
Aðalræðu kvöldsins flutti sr. Einar Guðnason í Reykholti.
Ennfremur töluðu beiðursgestirnir, dr. Ásmundur Guðmunds-
son, biskup og dr. Bjarni Jónsson, vígslubiskup. Frú Álfbeiður
Guðmundsdóttir söng einsöng með undirleik dr. Roberts A.
Ottóssonar, söngmálastjóra. Samsætinu stjórnaði sr. Jakob
Jónsson.