Kirkjuritið - 01.02.1964, Qupperneq 12
58
KIRKJURITIÐ
Það' er fólki með hugrenningum eins og þessum, sem Jesús er
að svara með sinni dásamlegu dæmisögu. Og hún liefur einnig
dýpri merkingu, eins og títt var um dæmisögur lians.
V íngarSseigandinn
Sá siður tíðkast enn í dag í Austurlöndum, að atvinnulausir
menn safnast saman á torgum og opinberum stöðum, til dæm-
is framan við guðsdýrkunarhúsin, með skóflu í liöndum, bíð-
andi eftir því að einliver komi til að ráða þá í vinnu.
Það er á eitthvert slíkt torg, sem víngarðseigandinn kemur,
fyrst árla morguns, svo um þriðju stund og loks, þegar lengra
líður á daginn til að bjóða atvinnuleysingjunum starf í vín-
garði sínum. En þegar hann kemur um elleftu stundu og hitt-
ir ennþá menn á torginu, verður undrunarlireimur í rödd hans,
er hann spyr: Hví standið þér hér allan daginn iðjulausir?
Víngarðseigandinn í dæmisögunni er vitanlega enginn annar
en Guð sjálfur og vér skulum nú staðnæmast við þessa spurn-
ingu: Hví standið þér hér allan daginn iðjulausir?
Stöðuglega er guð að kalla mennina í víngarð sinn til áríð-
andi og mikilvægra starfa. Störfin eru þó ef til vill ekki aðal-
atriðið, lieldur árangur starfsins, þroski sálarinnar og næmleiki
fyrir himneskum lilutum. Þetta skilningarvit fannst meistaran-
um mennina skorta. „Heyrandi heyra þeir ekki og sjáandi
skynja þeir livorki né skilja“. Og öðru sinni er eftir honum liaft:
„Við hvað á ég að líkja kynslóð þessari? Lík er hún börnum,
sem á torgum sitja, kalla til félaga sinna og segja: Vér lékum
fyrir yður á hljóðpípu og þér dönsuðu ekki, vér sungum sorg-
arljóð, og þér grétuð ekki“. Mennirnir, sem troðast um á torgi
lífsins, eru hvorki næmir fyrir gleði eða sorg. Og í dæmisög-
unni um verkamenn í víngarðinum eru þeir álíka sljóir og
seinir að hlýða kalli drottins.
Ymsar tegundir slœpingja
Samt eru þeir misfljótir að átta sig og ráða sig til starfa í
víngarðinum. Efalaust hefur Jesús manngerðir í huga, sem vér
könnumst við enn í dag. Það eru til ýmsar tegundir slæpingja,
auk þeirra sem beinlínis liafa ekkert fyrir stafni.
Sumir þeirra eru á þönum allan daginn og slíta sér út á alls
konar argi og umstangi, sem ekkert verulegt gagn gerir í heim-