Kirkjuritið - 01.02.1968, Side 10
Séra Pétur Sigurgeirsson:
Þórarinn Björnsson
skólameistari
Fœddur 19. desember 1905. — Dáinn 28. janúar 1968.
Minningarra’fía flutt viS útför lians 6. febrúar 1968.
Gef það, — faðir í himnunum, — að liingað komi friður frá
þér. — Sendu huggun þína þangað sem liarmar þjá. — Sefaðu
sorgina og söknuðinn, þú einn getur það, andi þinn. Lifandi
orð þitt, sonur þinn er þú sendir, til að við mættum trúa á
þig, treysta þinni forsjón.
Við þökkum þá, sem í anda og sannleika kenna okkur að
fara veg þinn og feta í fótspor Meistarans. — Við þökkum
fyrir Þórarinn Björnsson, — eiginmanninn, föðurinn, bróður-
inn, skólameistarann. Huggaðu ástvinaliópinn hans, skólann,
kennarana, ungmennin öll, sein hann annaðist af föðurlegri
mildi og forsjá. — Við syrgjum hann, liorfum í gegnum tárin
á himinsins sal, þar sem sólarbirtan umvefur liann, — og engin
orð komast að, — en eilífðin tekur við. — Bænlieyr þú í Jesú
nafni. — Amen.
Iiann kemur mér jafnan í hug, er ég heyri
gó&s manns getiS.
Við urðum liljóð, — þögnin varð sár, þegar sorgartáknið flutti
okkur fregnina, að Þórarinn Björnsson skólameistari væri
dáinn. — Kom mér þá í hug það, sem hann eitt sinn sagði, er
dauðinn liafði höggvið stórt skarð í raðir stúdenta, sem í
blóma lífsins lmrfu sýn yfir landamærin miklu. „Dauðinn er
staðreynd allra staðreynda.“ — Við vitum, að þetta er það
eina, sem allra bíður.