Kirkjuritið - 01.02.1968, Page 22

Kirkjuritið - 01.02.1968, Page 22
68 KIHKJUBITIÐ að á eldmóðinum og engu öðru. En prestar, viðhorf þeirra og kröfur breytast með nýjum tímum eins og annars fólks. Sennilega ríður þó baggamuninn, að prestar komast ekki bjá fremur en aðrir að liugsa um konur sínar og börn, og þeim lirýs hugur við að svipta börn sín þeim möguleika til menntunar, sem þau mundu njóta í bæ og borg. Víða til sveita brestur ennþá svo stórkostlega á jafnrétti við þéttbýlið, að börn verða að sækja önnur byggðarlög til að stunda nám þegar að barna- eða fullnaðarprófi loknu. Þannig bljóta foreldrar ekki aðeins að sjá af þeim frá 12—13 ára aldri, heldur og að bera gífurlegan kostnað af fjarvistum þeirra frá sama tíma. Prestum er gjörsamlega um megn að kosta börn sín til skólanáms í fjarlægum stað. Til þess skortir þá með öllu efna- legt bolmagn. Einmitt það atriði er svo veigamikið, að það befur knúið margan manninn frá óðali sínu. Staðaruppbót er ekki allslierjarlausn, samt spor í rétta átt. Úr Varabálki Sína liver einn hyrði her, höl þá sker, sem líða; gefið liér ei ölluni er auð'nu sér að smíð'a. Reiði blind er banvæn kind, breiðir út synd og trega, sneyðir yndi, ástarlind eyðir skyndilega. SigurSur GuSmundssou á Hei'öi. fe

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.