Kirkjuritið - 01.02.1968, Blaðsíða 28
KIRKJURITIÐ
74
Finna hæst. 1 Finnlandi er lögboðið, að ríkið greiði a. m. k.
lann eins díakóns eða einnar díakónissu í hverjum söfnuði og
styrki auk þess skólana verulega. 1 Danmörku aftur á móti,
fær þessi merka starfsemi ekki túskildingsvirði af opinberu
fé.
Þjónandi söfnuður, var yfirskrift margnefndrar ráðstefnu.
Samtíningur þessi ætti að gefa nokkra mynd af því, hvernig
þessi samstillti hópur, sem þarna var samankominn, ræddi
sitt hjartans mál. Boðun fagnaðarerindisins með líknarþjón-
ustu í anda Krists.
Ég legg mig tii svefns
Drottinn
kom
og breið nóttina yfir mig
Breið náð bína yfir oss
svo sem þú fcefur heitið.
Heit bín eru staðfastari
en stjörnumergð himinsins,
náð bín dýpri en nóttin.
Drottinn
það kólnar,
Nótt jarðarinnar nálgast
eins og dauðakul.
Nóttin kemur,
lokin koma
en Jesús Kristur kemur einnig.
Drottinn,
hans bíðum við
dag og nótt.
(Afríkönsk bæn)