Kirkjuritið - 01.02.1968, Page 36
82
KIRKJURITIÐ
verður ekki sagt um lineigð og liæfni varðandi listir, vísindi
eða tækni. Trúin er samgróin mannlegu eðli, þótt liún brjótist
ekki venjulega út nema þegar mjög syrtir í álinn.
Ég rakst á málgagn „hippí-manna“ í San Francisco. Mig
stórfurðaði á því livað það var trúrækilegt. Ekki í venjulegun1
skilningi að vísu, en greinar þess voru trúrækilegar í víSustU
merkingu or&sins. Einkunnarorð þeirra er „kærleikur“, er
það ekki? Gott og vel, Guð er kærleikur.
Frumkristnin. Víkið huganum að frumkristninni. Lesið upp'
liafskafla Postulasögunnar. Svo virtist að postularnir væru að
ærast á hvítasunnudaginn. Þeir töluðu tungum. Fólkið spurði;
eru mennirnir drukknir? Pétur svaraði, ætli það, klukkan er
ekki nema níu að morgni. Við gætum varla verið strax orðm1'
út úr, jafnvel þótt við værum drykkjuræflar.
Þeir liættu allir að vinna. Þeir, sein efnaðir voru. seldu eigur
sínar og skiptu andvirðinu milli meðlima safnaðarins. Þetta
minnir allt á „hippíana“ Og svo sögðu postularnir: Við getuJ11
ekki verið að dútla við þessi framkvæmdarstörf. Við kjósiiu1
nokkra puðara til að sjá um þau. Og þeir nefndu þá djákna-
Seinna sneru kristnir menn við blaðinu — um það ley11
sem þeir voru að ná yfirráðum rómverska keisaradæmisins !l
annarri og þriðju öld. Þeir voru eftir sem áður kristnir, eJ1
þeir töluðu ekki lengur tungum né lifðu í iðjuleysi. Það var
aðeins tímabundið. Þeir byrjuðu með „hippía-hætti“ en liurf11
að jákvæðri stefnu og að sjálfsögðu líka veraldlegri. HefðuU1
vér verið á lífi og virt fyrir oss frumkristnina kynnum vér
liafa sagt: „Æ, þetta er dæmalaust ,,hippí“. Það verður aldre1
barn í belg. En vér hefðum liaft á röngu að standa.
Engin lög, kreddur eða skoðanir hafa eflt góðviljann eins og hin krisU,a
trú. — Bacon.
Svo vondir sem menn eru þrátt fyrir trúna, hvað mundu þeir þá vcrí'
án hennar. — Franklín.