Kirkjuritið - 01.02.1968, Page 45
KIRKJURITIÐ
91
Sálmur
Ó, faðir gef mér blítt og barnslegt hjarta
er blessi Ijós, en forSist myrkriS svarta
og birtu fceri þeim, er böl viS stríSa
og beri gleSi þeim er sjnkdóm líSa.
Ó, faSir gef mér kraft og kærleiksanda
og kenn mér rétt aS taka hverjum vanda
svo öll mín verk þér œtíS þóknast megi
og ávallt gangi ég trii á þínum vegi.
Ó styrk mig GuS í þrengingum og þrautum
og þrek mér gef á hörmunganna brautum
og tak mig loks í faSm þinn faSir blíSi,
minn frelsa anda er lýkur öllu stríSi.
Ó, blessa, faSir, allt sem dregur anda,
en einkum þá sem staddir eru í vanda
og gef aS sumarblœrinn mildi, blíSi
nii blessi, hressi og gleSji alla lýSi.
Kristnesliæli í apríl 1967.
G. Þ.