Kirkjuritið - 01.05.1969, Blaðsíða 36

Kirkjuritið - 01.05.1969, Blaðsíða 36
Gunnar Árnason: Nýtt biskupsdæmi í Noregi Á síðastliðnu ári var Oslóarbiskupsdæmi skipt o;j stofnað svo- nefnt Borgarbiskupsdæmi. Eru j)au þá orðin 9 j)ar í landi- Við biskupskjör fékk Bjarni O. Weide rektor, langflest at- kvæði, en næstur kom Per Lönning dómprófastur í Bergen- Var þó aðeins liðlega liálfdrættingur á við j)ann fyrrnefnda. En svo fór að Lönning var skipaður í embættið gegn tillöguin kirkjumálaráðberra og forsætisráðherra, en með atkvæðuin meiri iiluta ráðuneytisins. Vakti slikt einsdæmi all mikil blaða- skrif. Neitaöi J)ó enginn að Per Lönning væri manna glæsilegast- ur norskra kennimanna, og livað líklegastur til mikilla afreka í biskupsdómi. Mætti telja víst að liann bryti nýjar brautir og væri manna vísastur til að laða liina nýju kynslóð til fylg' is við kirkjuna. Lönning var vígður til biskups 23. mars síðastliðinn í dóm- kirkjunni í Fredriksstad, Jiar sem setur lians befur verið ákveðið. Við vígslu lians var margt stórmenna, m. a. Ölafur konungur, Haraldur krónprins og Sonja krónprinsessa. Fjöbb andlegrar stéttar manna. I Iiópi þeirra voru fulltrúar sænskm finnsku og dönsku kirknanna, sinn biskupinn frá bverri })ess- ara þjóða. Oslóarbiskup, Fridtjov Birkeli, framkvæmdi vígsluna, e» nýskipaður dómprófastur í Fredriksstad, Karl Johan Bubaug las æviágrip liins nýja biskups af predikunarstóli. Verður það bér lauslega rakið: Lönning er fæddur í Björgvin 24. febrúar 1928. Faðirim1 var skrifstofumaður. Báðir foreldrarnir trúrækin og ábugasoiu um málefni kristni og kirkju. 14 ára gamall varð Lönning fyrir vakningu, sótti kirkju reglulega og ákvað fljótlega upp frá })ví að stefna að prests-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.