Kirkjuritið - 01.12.1975, Side 10

Kirkjuritið - 01.12.1975, Side 10
er þó gert á þessu tímabili merkilegt átak, að Danir verði kristin þjóð og leggjast þar á eitt ríkið og kirkjan. Brynjólfur nýtur ekki leiðsagnar neinna aukvisa við Kaupmannahafnar- háskóla. Frægastan þeirra verður að telja Jesper Brochmann, kennara tveggja sona Kristjáns IV., Kristjáns prins og Friðriks III., er Brochmann vígir til konungs, er hann er orðinn Sjálands- biskup. Griffenfeld greifi er og í nem- endahópi hans. Trúfræði Brochmanns var eitt höf- uðrit Lútherstrúarmanna í þeirri grein um langan aldur, og húslestrabók hans mótaði trúarlíf Dana öldum saman. Brochmann vígir Brynjólf til Skálholts, og er það hans fyrsta biskupsvígsla. Margt í biskupsdómi Brynjólfs gæti verið gert með hliðsjón af embættis- rekstri Brochmanns. Það er sagt, að Brynjólfur Sveinsson hafi ekki verið mikill guðfræðingur. Þess gætir þó nógsamlega í heimild- um, að hann hefur verið heitur og innilegur trúmaður. Rétttrúnaður hans hefur verið óbrigðull, en þó mótaður þeirri staðreynd. Oft telja menn, að rétttrúnaðurinn hafi allur verið í bókstafnum. Það er ekki rétt. Trúin skyldi birtast í verk- um. C. Rosenberg segir í ritverki sínu: Nordboernes Aandsliv (III. b. bls. 315) að trúfræði þessa tíma hafi verið eins konar vopnabúr gegn villutrú. Það er að nokkru rétt, en fyrst og fremst skyldi hún vera verkfærageymsla fyrir daglegt líf og starf. Á æðri mið var að vísu stefnt. Mikill guðfræðingur á 17. öld var næsta fjölmenntur, og verður trauðla skipað á einn eða neinn lærdómsbás nútímans. Aðalkennari Brynjólfs bisk- ups, Jesper Bartholín, átti þess t. d. kost að verða prófessor í heimspeki í Sviss, í líffærafræði á Ítalíu og í grísku í Frakklandi. Hann samdi kennslubók í læknisfræði, sem notuð var víðs vegar í háskólum Evrópu. Hann var og lækn- isfræðiprófessor, þar til hann gerðist guðfræðikennari, en hafði raunar löngu áður samið kennslubækur í rök- fræði og heimspeki. Læknisfræðiáhuga Brynjólfs Sveins- sonar má vafalaust rekja til Barthólíns, og heita trú hans að nokkru einnig og guðfræðileg viðhorf, þótt Brochmann hafi þar orðið áhrífadrýgstur. Jesper Bartholin samdi trúarleg vakningarrit, sem lesin voru til upp- byggingar fram á 18. öld. Þennan grundvöll brýndi Bartholín fyri stúdentunum: 1. Ritninguna 2. Ritninguna. 3. Ritninguna. Þeir áttu að lesa hana á móðurmálinu, á frum- málunum og svo skýringarrit við hana. Má minna á, að Brynjólfur Sveinsson tekur að þýða Nýja-Testamentið úr grísku á íslensku. En hann fær ekki komið þýðingu sinni á prent, vegna þess að prentverkið er ekki í hans höndum. Trúarljóð Brynjólfs eru ekki fjöl- breytt og satt er það, að þau eru all- mjög kaþólsk, en grunntónninn er innileg guðrækni með iðrunar og yfir- bótarblæ. Þess ber hér að gæta, að á mótunartíma Brynjólfs í Danmörku gætir þar afturhvarfs til trúarlegs inni- leiks kaþólskrar trúar. í ýmsu minnir Brynjólfur Sveinsson 248

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.